Í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins er ítarlegur fréttaannáll sem spannar þrjátíu ár. Hér er farið yfir helstu fréttir frá 1994 til 2004.

Ein stærsta frétt íslensks viðskiptalífs þetta árið 1994 voru kaup Íslenskra sjávarafurða á 30% hlut í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Kaupin ollu miklum titringi í íslensku viðskiptalífi og litið var á þau sem upphafið að flóknu valdatafli milli ÍS og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem þá börðust um áhrif innan Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda.

Áður voru það Sambandið og kaupfélögin sem börðust við Sölumiðstöðina og fyrirtæki eins og Eimskip, Sjóvá, Flugleiðir og Skeljung, en að gamla sambandinu föllnu tóku við ný fyrirtæki reist á grunni þess og var ÍS þar á meðal. Hélt baráttan því áfram.

Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson.
Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð Oddsson.
© Sverrir Vilhelmsson (M Mynd / Sverrir Vilhelmsson)

EES-samningurinn tekur gildir

Árið 1994, sama ár og Viðskiptablaðið hóf göngu sína, tók samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningurinn) gildi. Það gerðist þann 1. janúar þetta ár. Árið áður hafði Alþingi staðfest samninginn með lögum um Evrópska efnahagssvæðið. Samningurinn var umdeildur og til marks um það þá greiddu 33 þingmenn atkvæði með samningnum, 23 á móti og sex sátu hjá.

Í desember 1994 greindi Viðskiptablaðið frá því að gengi nokkurra íslenskra hlutabréfa hefði hækkað mjög frá árinu 1990. Þeir sem hefðu t.d. keypt hluti í Olíufélaginu í ársbyrjun 1990 hefðu með sölu í lok nóvember 1994 tryggt sér 180% ávöxtun. Tekið er fram í umfjölluninni að fjárhagslega sterkustu félögin, þ.e. olíufélögin þrjú, Sjóvá og Eimskip hefðu sýnt svipaða leitni til hækkunar á meðan gengi sjávarútvegsfyrirtækja væri mun sveiflukenndara.

***

Í stjórnmálum gerðist ýmislegt. Smugudeilan, hápólitísk deila um fiskveiðar í Barentshafi, stóð sem hæst. Reykjavíkurlistinn komst til valda í borginni og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varð borgarstjóri. Jóhanna Sigurðardóttir hætti í Alþýðuflokknum eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Jóni Baldvin Hannibalssyni í formannskjöri. Þegar úrslitin voru kunngjörð hrópaði Jóhanna, eins og frægt er orðið „minn tími mun koma“. Í kjölfarið á þessu hætti hún sem félagsmálaráðherra og tók Guðmundur Árni Stefánsson við því embætti en áður hafði hann verið heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.

Guðmundur Árni sagði af sér embætti í lok árs 1994 en það gerði hann í kjölfar mikillar fjölmiðlaumfjöllunar og svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um hans embættisfærslur. Steingrímur Hermannsson, hætti í stjórnmálum þetta ár og varð seðlabankastjóri og Halldór Ásgrímsson tók við formennsku í Framsóknarflokknum. Albert Guðmundsson, fyrrverandi ráðherra, sendiherra og knattspyrnumaður lést þann 7. apríl árið 1994.

1995

Jóhanna Sigurðardóttir, sem gekk í fússi úr Alþýðuflokknum, stofnaði sinn eigin flokk, Þjóðavaka. Flokkurinn mældist með mikið fylgi í skoðanakönnunum en þegar koma að kosningum hlaut hann 7,2%, sem voru vonbrigði fyrir Jóhönnu og hennar fólk. Undir lok ársins lét Ólafur Ragnar Grímsson af embætti formanns Alþýðubandalagsins og í kjölfarið var formannskjör. Þar öttu kappi þau Margrét Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon og hafði Margrét betur.

Mannskætt snjóflóð féll á Flateyri þann 26. október 1995.
Mannskætt snjóflóð féll á Flateyri þann 26. október 1995.
© Þorkell Þorkelsson (Þorkell Þorkelsson)

Hamfarir á Vestfjörðum

Árið 1995 var mikið hamfaraár á Íslandi. Í janúar féll snjóflóð á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að fjórtán létust. Mánuði síðar lést einn í snjóflóði í Bláfjöllum og í nóvember féll stórt flóð á byggðina á Flateyri, þar sem tuttugu manns létust.

***

Í pólitíkinni bar það hæst að Viðeyjarstjórnin, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem hafði verið við völd frá 1991 leið undir lok. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, myndaði nýja stjórn með Framsóknarflokknum, þar sem Halldór Ásgrímsson var formaður en hann hafði tekið við af Steingrími Hermannssyni árið á undan.

***

Til marks um þá breytingu sem íslenskt viðskiptalíf var að ganga í gegnum á þessum árum er frétt Viðskiptablaðsins um að verðbréfafyrirtæki væru tekin upp á því að bjóða fólki lán til kaupa á verðbréfum og tryggingafélög væru að gerast svo djörf að lána fólki fyrir bílakaupum.

***

Eignarhald á fjölmiðlum er eldra umræðuefni en margir gæti talið, en í febrúar 1995 voru það kaup Íslenska útvarpsfélagsins á 35% hlut í Frjálsri fjölmiðlun, útgefanda DV, sem voru upphaf umræðnanna. Í utandagskrárumræðum á Alþingi útilokaði menntamálaráðherra það ekki að sett yrðu sérstök lög um eignarhald og valdasamþjöppun í fjölmiðlun og taldi Guðrún Helgadóttir alþingismaður réttast að sett yrði á fót ríkisdagblað til að koma fréttum á borð landsmanna þar sem hið ískalda vald peninganna næði ekki að stjórna málum.

***

Árið 1995 var Heimsmeistarakeppnin í handbolta haldinn hér á landi. Búist var við fjölda ferðamanna vegna þessa og um tíma óttuðust menn helst að ekki væri nægjanlegt gistirými til að taka við öllum. Reyndin varð hins vegar sú að sárafáir gestir komu til að fylgjast með og til að setja punktinn yfir i-ið þá stóð íslenska liðið alls ekki undir væntingum og hafnaði í 13.-16. Sæti.

***

Söngkonan ástsæla Ellý Vilhjálmsdóttir lést árið 1995.

1996

Þjóðvaki, flokkur Jóhönnu Sigurðardóttur, sameinaðist Alþýðuflokknum haustið 1996. Þá lét Jón Baldvin Hannibalsson af formennsku í flokknum og Sighvatur Björgvinsson tók við eftir harða baráttu við Guðmund Árna Stefánsson í formannskjöri. Þetta ár var Grétar Þorsteinsson, kjörinn formaður Alþýðusambands Íslands. Tók hann við embættinu af Benedikt Davíðssyni.

Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heitin.
Ólafur Ragnar Grímsson og Guðrún Katrín Þorbergsdóttir heitin.
© Sverrir Vilhelmsson (M Mynd / Sverrir Vilhelmsson)

Ólafur Ragnar kjörinn forseti

Árið 1996 lét Vigdís Finnbogadóttir af embætti forseta Íslands eftir að hafa gegnt því í fjögur kjörtímabil eða frá árinu 1980. Sólveig Pétursdóttir tilkynnti fyrst allra framboð en tíu dögum fyrir kjördag dró hún framboðið tilbaka. Þann 29. júní gengu landsmenn að kjörborðinu og í framboði voru Guðrún Agnarsdóttir læknir, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari og Ástþór Magnússon athafnamaður. Ólafur Ragnar hlaut 41,4% atkvæða. Pétur Kr. hlaut 29,5% atkvæða, Guðrún 26,4% og Ástþór rak lestina með 2,7%. Var Ólafur Ragnar settur í embætti þann 1. ágúst.

***

Í viðskiptalífinu gerðist ýmislegt þetta ár og var Íslensk erfðagreining meðal annars stofnuð þetta ár. Mikla athygli vakti þegar Flugleiðir keyptu hlut í Ferðaskrifstofu Íslands, sem m.a. ráku Edduhótelin. Talsmenn Flugleiða sögðust telja sér vera skyldug til að fjárfesta í íslenskri ferðaþjónustu. Félagið ætti ekki lengur bara að vera flugfélag, heldur alhliða ferðaþjónustufyrirtæki sem myndi láta víða til sín taka.

***

Skráning Samherja í Kauphöllina vakti sömuleiðis athygli. Verðmæti Samherja var þá metið á um 10 milljarða króna og var það þá sem nú stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri sagði í samtali við Viðskiptablaðið að hlutabréfamarkaðurinn væri harður húsbóndi. „Þetta veitir okkur aukið aðhald og hjálpar okkur þannig að ná sem bestum árangri í rekstrinum.“ Líkt og flest önnur sjávarútvegsfyrirtæki sem skráð voru á markað á þessum árum átti Samherji þó eftir að hverfa þaðan aftur innan nokkurra ára.

***

Fréttnæmt þótti einnig þegar Ingvar Helgason hf. hóf fyrst bílaumboða að bjóða upp á rekstrarleigu bifreiða. Haft var eftir Jóhanni Egilssyni hjá fyrirtækinu að með þessu væri verið að fylgja þróun sem hafi orðið erlendis, en fyrir fyrirtæki gæti jafnvel verið ódýrara að leigja bifreiðar en kaupa þær.

***

Árið 1996 varð síðan Almenna bókafélagið gjaldþrota og keypti Vaka-Helgafell bókabirgðirnar. Nafnið lifir samt góðu lífi í dag því BF-útgáfa keypti það og gefur í dag meðal annars út bækur undir nafni Almenna bókafélagsins.

1997

Bjarni Ármannsson tók við sem bankastjóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins haustið 1997, tæplega þrítugur að aldri. Átti hann eftir að stýra bankanum og síðar Íslandsbanka og Glitni til ársins 2007. Í umfjöllun Viðskiptablaðsins kom m.a. fram að honum þætti gott að taka upp kartöflur þegar hann væri stressaður, en hann var líka sagður skarpgreindur vinnuþjarkur sem væri gjarn á að hrista upp í hlutunum. Bjarni átti eftir að heyja marga hildina innan bankans þar til hann lét af störfum tuttugu árum seinna, snemma árs 2007, þegar nýir eigendur með Jón Ásgeir Jóhannesson í broddi fylkingar, höfðu náð tökum á bankanum.

Flutningaskipið Víkartindur strandaði í Háfsfjöru, skammt frá ósum Þjórsár árið 1997.
Flutningaskipið Víkartindur strandaði í Háfsfjöru, skammt frá ósum Þjórsár árið 1997.
© Ragnar Axelsson (RAX)

Víkartindur strandaði

Á sex dögum í byrjun marsmánaðar urðu þrjú sjóslys. Flutningaskipið Víkartindur strandaði í Háfsfjöru, skammt frá ósum Þjórsár, flutningsskipið Dísarfell sökk suðaustur af Stokksnesi og báturinn Þorsteinn strandaði á sunnanverðu Reykjanesi. Alls bjargaði þyrlusveit Landhelgisgæslunnar 39 mönnum í þessum slysum en þrír létust.

***

Þetta ár tók Páll Skúlason við embætti rektors Háskóla Íslands af Sveinbirni Björnssyni. Karl Sigurbjörnsson varð réttkjörinn biskup Íslands en hann tók við af Ólafi Skúlasyni. Verkalýðsleiðtoginn Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, sem oftast var kallaður Guðmundur Jaki, lést 12. júní árið 1997, sjötugur að aldri.

***

Endi var bundinn á enn eina tilraunina til að koma á laggirnar nýrri sjónvarpsstöð á landinu í febrúar 1997 þegar Stöð 2 keypti keppinautinn Stöð 3. Mikið hafði gengið á og hafði Stöð 2 meðal annars leitað liðsinnis rannsóknarlögreglu ríkisins eftir að fimm lykilstarfsmenn hófu störf hjá keppinautnum. Bið Stöðvar 3 eftir afruglurum setti hins vegar stórt strik í reikninginn hjá fyrirtækinu og er ákveðin kaldhæðni í því fólgin að gengið var frá kaupum Stöðvar 2 á fyrirtækinu nánast á sama tíma og afruglararnir loks komu til landsins.

***

Hlutabréfamarkaðurinn hélt áfram að vaxa árið 1997 og um mitt árið greindi Viðskiptablaðið frá því að markaðsvirði hlutabréfa í Kauphöll hefði hækkað um 50 milljarða króna það sem af var árinu. Skýrðist hún að hluta til vegna nýskráninga, en hlutabréfaverð hækkaði einnig ört. Markaðsverðmæti SR-Mjöls og Marel hafði til dæmis hækkað um 100% frá áramótum. Var þetta aðeins upphafið að örum vexti á hlutabréfamarkaði sem átti eftir að halda áfram, með herkjum þó um aldamótin, allt til bankahrunsins 2008.

1998

Sumarið 1998 voru Hvalfjarðargöngin opnuð en með tilkomu þeirra styttist hringvegurinn um 42 kílómetra.

***

Sveitarstjórnarkosningar fórum fram þetta ár og bar helst til tíðinda að Reykjavíkurlistinn, með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í broddi fylkingar, hélt meirihluta sínum. Árni Sigfússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði af sér fljótlega eftir kosningarnar og tók Inga Jóna Þórðardóttir við haf honum.

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
© BIG (VB MYND/BIG)

Baugur eignast Hagkaup

Stærsta fyrirtækjasala á Íslandi fram að þeim tíma fór fram í júní 1998 þegar Hagkaupsfjölskyldan seldi rekstur Hagkaupsverslananna til Baugs og sameinaðist rekstur Hagkaupsverslananna rekstri verslana Bónuss. Samanlögð velta fyrirtækjanna tveggja árið 1997 var um 17 milljarðar króna og þar af átti Bónus tæpa sex milljarða. Samanlagður hagnaður var sagður um 350 milljónir. Fyrirtækin tvö höfðu þó verið í einni sæng í nokkurn tíma, því Hagkaup hafði átt stóran hlut í Bónus áður. Þessi sameining lagði grunninn að veldi Bónusfeðga og er nú kjarninn í rekstri Haga.

***

Sverrir Hermannsson sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum og stofnaði Frjálslynda flokkinn árið 1998. Var þetta viðburðaríkt ár hjá Sverri því áður en flokkurinn var stofnaður hafði hann, í skugga umræðu um spillingu sagt af sér sem bankastjóri Landsbankans. Á þessum tíma voru bankastjórnir þrír og sögðu þeir Björgvin Vilmundarson og Halldór Guðbjarnarson einnig af sér. Halldór J. Kristjánsson var ráðinn bankastjóri í stað þremenninganna.

***

Íslensk erfðagreining, sem stofnað var árið 1996, tók að stíga sín fyrstu skref inn á skipulagðan hlutabréfamarkað tveimur árum síðar. Skráning erlendis var á stefnuskránni en Íslendingum var gefinn kostur á að tryggja sér hluti í fyrirtækinu á undan útlendingum. Eftirspurnin var mikil, enda taldi fólk framtíðina bjarta. Gert var ráð fyrir 350 milljóna króna hagnaði þegar á árinu 1999, en sú von rættist ekki. Leit að íslenskum genum þótti ávísun á skjótfenginn gróða, en margir brenndu sig á þeirri von þegar tæknibólan svokallaða sprakk og hátæknifyrirtæki eins og Íslensk erfðagreining féllu í verði á mörkuðum hér heima og erlendis.

***

Þorvaldur Guðmundsson, sem ávallt var kenndur við Síld og fisk, lést 10. Janúar, 86 ára að aldri. Halldór Laxness rithöfundur lést 8. Febrúar 1998, 95 ára að aldri. Þann 12. október andaðast Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú. Var hún 64 ára og hafði glímt við erfið veikindi.

1999

Miklar væringar voru í pólitíkinni á þessum árum. Samfylkingar jafnaðarmanna var mynduð úr nokkrum flokkum eða Alþýðuflokknum, Alþýðubandalaginu, Þjóðavaka og Kvennalistanum. Bauð Samfylkingin fram í þingkosningum vorið 1999 og fékk tæp 27% sem var minna fylgi en flokkarnir höfðu fengið samanlagt í kosningunum 1995. Ein ástæðan var sú að Steingrímur J. Sigfússon og félagar stofnuðu annan flokk, Vinstri hreyfinguna - grænt framboð, sem stóð lengra til vinstri, sem stóð lengra til vinstri en Samfylkingin. VG hlaut ríflega 9% atkvæða í kosningunum og Frjálslyndi flokkurinn rúmlega 4%. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt auðveldlega velli í kosningunum og setti Davíð Oddsson met á þessu ári. Enginn hafði setið jafnlengi samfellt sem forsætisráðherra.

Guðjón Þórðarson leiddi Stoke City til sigurs í bikarkeppni neðri deildarliða á Englandi, árið 2000. Í íslenskum fjölmiðlum var bikarinn kallaður framrúðubikarinn, því helsti styrktaraðili keppninnar var fyrirtækið Auto Windscreens.
Guðjón Þórðarson leiddi Stoke City til sigurs í bikarkeppni neðri deildarliða á Englandi, árið 2000. Í íslenskum fjölmiðlum var bikarinn kallaður framrúðubikarinn, því helsti styrktaraðili keppninnar var fyrirtækið Auto Windscreens.

Íslendingar kaupa Stoke

Árið 1999 keyptu íslenskir fjárfestar meirihluta í enska knattspyrnuliðinu Stoke City. Á þessum tíma var liðið í þriðju efstu deild Englands. Var Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari og þjálfaði hann liðið allt til ársins 2002. Árið 2000 leiddi hann liðið til sigurðs í bikarkeppni neðri deildarliða.

***

Grái markaðurinn svokallaði hélt áfram að heilla Íslendinga árið 1999, enda tæknibólan þá að nálgast hámarkið. Fjallað var um gengi tæknifyrirtækisins Oz í mars 1999 en þá hafði gengið margfaldast á skömmum tíma þrátt fyrir takmarkaðar upplýsingar um fjárhag fyrirtækisins. Markaðsvirði fyrirtækisins var um 15 milljarðar króna á þessum tíma og veltu menn því fyrir sér hvort það væri réttlætanlegt í ljósi þess að velta fyrirtækisins var þá aðeins um 700 milljónir króna á ári. Gengi DeCode hækkaði sömuleiðis og var markaðsvirði þess komið í 60 milljarða króna í október 1999 en hafði verið um 18 milljarðar um áramótin.

***

Þetta ár birtist fræg ljósmynd eftir Gunnar V. Andrésson, þar sem Dorrit Moussaieff sést hugga Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, sem hafði dottið af hestbaki í Landsveit og axlarbrotnað. Önnur mynd sýndi Dorrit með tár á hvarmi. Voru þetta fyrstu myndirnar sem birtust af Ólafi Ragnari og Dorrit en þau giftust fjórum árum síðar.

***

Baugur hélt áfram vexti eftir kaupin á Hagkaupsverslununum árið áður. Fyrirtækið keypti 10-11 verslanirnar sem verið höfðu í eigu Vöruveltunnar hf. Íslenska útvarpsfélaginu, Sýn og Skífunni var steypt saman í afþreyingarsamsteypu undir nafninu Norðurljós. Tilefnið var notað til að endurfjármagna reksturinn með nýju sambankaláni, sem m.a. var notað til að kaupa Skífuna af Jóni Ólafssyni.

2000

Þann 17. Júní árið 2000 urðu tveir stórir jarðskjálftar á Suðurlandi, sá fyrri mældist 6,5 að stærð og sá seinni 5,7. Fjórum dögum síðar reið annar jarðskjálfti yfir og mældist hann 6,4 að stærð. Mesta mildi þótti að enginn skyldi farast í þessum stóru skjálftum og meiðsli á fólki voru heldur ekki teljandi. Aftur á móti varð verulegt tjón á tugum húsa, innbúum, vegum og veitukerfi.

***

Á aðventunni varð stórbruni í Vestmannaeyjum þegar eldsvoði lagði frystihús Ísfélags Vestmannaeyja rúst. Var tjónið metið á um milljarð króna.

***

Árið 2000 hætti Hörður Sigurgestsson sem forstjóri Eimskips, en hann hafði stýrt félaginu frá árinu 1979. Við forstjórastarfinu tók Ingimundur Sigurpálsson, sem verið hafði bæjarstjóri í Garðabæ.

***

Ólafur Ragnar Grímsson trúlofaðist Dorrit Moussaieff og hóf annað kjörtímabil sitt sem forseti Íslands en hann var sjálfkjörinn. Samfylkingin var formlega stofnuð þetta ár og varð Össur Skarphéðinsson fyrsti formaður flokksins og Margrét Frímannsdóttir varaformaður.

Kári Stefánsson.
Kári Stefánsson.

DeCode á markað

DeCode var loks skráð á markað í Bandaríkjunum í júlí 2000 og þótti skráningin ganga vel. Verðmæti félagsins jókst um tugi milljarða króna á einum degi og var fyrirtækið orðið verðmætara en öll skráð íslensk sjávarútvegsfyrirtæki til samans. Ekkert íslenskt fyrirtæki hafði notið viðlíka athygli, en skammt var þar til tæknibólan sprakk.

***

Fyrsta stóra einkarekna fjárfestingarfélagið hér á landi leit dagsins ljós um mitt sumar 2000. Gilding hugði á stóra hluti og sótti fyrirmyndir til útlanda. Aðstandendur og starfsmenn félagsins voru þeir Þórður Magnússon, Heimir Haraldsson, Árni Oddur Þórðarson, Bjarni Þórður Bjarnason og Magnús Magnússon.

***

Það voru hins vegar ekki eingöngu tæknifyrirtæki sem létu á sjá á seinni hluta ársins 2000. Eftir mikla bjartsýnistíð á íslenskum fjármálamarkaði skall skammdegið skyndilega á. Fjármálamarkaðir heimsins tóku hressilega dýfu á fyrri hluta ársins og ólíkt því sem gerst hafði á árum áður fylgdi sá íslenski með. Mikil peningaþurrð var á markaðnum síðari hluta ársins og þeir sem höfðu hugsað sér gott til glóðarinnar voru orðnir órólegir. Frá júlí og fram í nóvember veiktist krónan um 5,6% og olíuverð hækkaði um 80% á fyrstu ellefu mánuðum ársins.

***

Loks má geta þess að á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2000 var Björk Guðmundsdóttir valin besta leikkona í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni Dancer in the Dark.

2001

Mikil átök voru í þjóðfélaginu í byrjun árs vegna Öryrkjadómsins svokallaða, en Hæstiréttur úrskurðaði að óheimilt væri að skerða tekjur öryrkja vegna tekna maka þeirra. Málið vatt upp á sig og fékk á sig ýmsa anga. Einnig voru talsverð átök voru á vinnumarkaði og fóru óvenjumargar stéttir í verkföll.

Perlan í Öskjuhlíð.
Perlan í Öskjuhlíð.

Leynifundir í Öskjuhlíð

Tvö stór samráðsmál komu upp á yfirborðið. Þrjú fyrirtæki á sviði heildsöludreifingar á grænmeti og ávöxtum voru sektuð um samtals 105 milljónir króna vegna brota á ákvæðum samkeppnislaga um bann við verðsamráði og markaðsskiptingu. Mikla athygli vakti að Öskjuhlíðin var vettvangur a.m.k. eins leynifundar. Þá var ráðist í húsleitir hjá stóru olíufélögunum þremur; Essó, Olís og Skeljungi vegna gruns um samráð félaganna.

***

Matthías Johannessen, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, settist í helgan stein í byrjun árs 2001, eftir tæplega hálfrar aldar feril á Morgunblaðinu. Þá hóf Fréttablaðið göngu sína vorið 2001.

***

Erfitt er að ofmeta áhrif hryðjuverkaárásarinnar á tvíburaturnana í New York í september 2001. Flug lagðist nánast niður í Vesturheimi um nokkurra mánaða skeið og tók það erlend flugfélög mörg ár að jafna sig á áfallinu. Icelandair þurfti sjálft að segja upp starfsfólki og skera harkalega niður í sínum rekstri.

***

Nokkrum vikum síðar, eða í septemberlok, var gerð tilraun til að selja hluta af hlutafé Landssíma Íslands á markaði. Verðið þótti hins vegar of hátt og seldist aðeins fimmtungur af því hlutafé sem til stóð að selja almenningi, starfsmönnum og fjárfestum. Viðskiptablaðið var svartsýnt í kjölfar þess, sem kallað var Landssímaklúðrið, og sagði m.a: „Niðurstaða útboðsins er að mörgu leyti dapurleg fyrir hlutabréfamarkaðinn í heild. Útboð Landssímans er e.t.v. síðasti líkkistunaglinn í kistu íslensks hlutabréfamarkaðar sem er að öllum líkindum dæmdur til þess að rísa ekki upp aftur fyrr en að löngum tíma liðnum.“

***

Bakkabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir sátu ekki auðum höndum. Þeir slógu lán upp á rúma 12 milljarða og gengu frá stærstu fyrirtækjakaupum íslenskrar fyrirtækjasögu á þeim tíma. Með kaupunum á breska fyrirtækinu Katsouris Fresh Foods hösluðu þeir sér enn frekar völl á breska matvælamarkaðnum og voru komnir í viðskipti við flestar helstu verslunarkeðjur Evrópu.

***

Annað markvert sem gerðist á árinu var að Smáralind opnaði, Ísland varð aðili að Schengen-samstarfinu og Björk Guðmundsdóttir var tilnefnd til Óskarsverðlauna.

2002

Árið 2002 hófust samningaviðræður við Alcoa um byggingu álvers á Íslandi. Stefnt hafði verið að því um nokkurn tíma að fjölga álverum og hafði m.a. verið rætt við Norsk Hydro í því sambandi, en norska fyrirtækið hafði dregið sig í hlé. Þegar greint var frá viðræðunum í Viðskiptablaðinu í ágúst 2002 var einnig sagt frá því að álframleiðsla Íslands gæti fjórfaldast á nokkrum árum og tekjur af álframleiðslu aukast um hundrað milljarða króna. Sumir höfðu þó áhyggjur af þenslunni og timburmönnunum sem fylgja myndu í kjölfarið. Stjórn Landsvirkjunar samþykkti svo raforkusamning við Alcoa í janúar 2003. Undirbúningsframkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar hófust svo síðla árs eftir langan og stormasaman aðdraganda.

***

Um tíma virtist sem svo að einkavæðing bankanna væri að renna út í sandinn, en á haustdögum 2002 færðist aldeilis fjör í leikinn á ný. Gengið var frá kaupum Samsonar eignarhaldsfélags á tæplega helmingshlut í Landsbankanum fyrir rúma 12 milljarða króna. Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteinsson stimpluðu sig því eftirminnilega inn í íslenskt viðskiptalíf. Skömmu eftir kaupin fór Magnús þó sínar eigin leiðir og keypti meirihluta í flugfélaginu Atlanta.

Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa og formælandi S-hópsins, og Peter Gatti, framkvæmdastjóri þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa og formælandi S-hópsins, og Peter Gatti, framkvæmdastjóri þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KGaA.
© Árni Sæberg (M Mynd/Árni Sæberg)

Landsbankinn og Búnaðarbankinn seldir

Búnaðarbankinn var næstur á lista einkavæðingarinnar, en S-hópurinn svokallaði tryggði sér tæplega helmingshlut í bankanum fyrir 11,9 milljarða króna, eftir flókna fléttu innan hópsins sjálfs. Endanlegur kaupendahópur var ekki sá sami og hópurinn sem stóð að upphaflegu tilboði í hlutafé Búnaðarbankans. Andvaka, Fiskiðjan Skagfirðingur, Kaupfélag Skagfirðinga og Samskip heltust úr lestinni, en VÍS kom nýtt inn í hópinn ásamt Eglu. Eins og frægt er orðið voru margir ósáttir við það hvernig staðið var að sölu bankanna og jafnvel á sölunni sjálfri.

***

Ríki og borg undirrituðu samkomulag um byggingu tónlistarhúss við Miðbakka við Reykjavíkurhöfn. Umrætt tónlistarhús er að sjálfsögðu Harpan og opnaði húsið í maí áratug síðar.

***

Svokallað Baugsmál hófst með húsleit ríkislögreglustjóra á skrifstofu félagsins auk þess sem handtökuskipun var gefin út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnarformanni, og Tryggva Jónssyni, forstjóra. Kom þetta til vegna ásakana Jóns Geralds Sullenberger um meint auðgunarbrot tvímenninganna.

***

Reykjavíkurlistinn hélt völdum í borginni í kosningum sem fóru fram í byrjun sumars. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiddi listann til sigurs, þriðju kosningarnar í röð.

***

Ákveðið var á haustdögum að notkun aura í peningakerfinu yrði hætt.

2003

Einkavæðingu bankanna árið 2002 fylgdi uppstokkun á fjármálamarkaði og eitt fyrsta skrefið í þeirri breytingu var sameining Kaupþings og Búnaðarbankans. Stærsti banki landsins leit þar með dagsins ljós. Stefnan var strax tekin á Norðurlöndin og frekari útrás. Í umfjöllun Viðskiptablaðsins um samrunann segir m.a.: „Samruni Kaupþings og Búnaðarbanka hefur verið kallaður sameining en ber hins vegar með sér nokkurt yfirbragð yfirtöku, þ.e. að Kaupþing yfirtekur Búnaðarbankann. Svo má a.m.k. skilja það af ólíkum viðbrögðum hjá bönkunum þar sem Búnaðarbankafólk, sérstaklega á verðbréfasviði, sat við erfidrykkju undir sameiningartilkynningunni á sama tíma og mikil kæti ríkti í herbúðum Kaupþings.“ Svo fór einmitt að Kaupþingsmennirnir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson tóku við stjórnartaumunum í sameinuðu fyrirtæki.

***

Árið 2003 sást hve skamman tíma það tók Flugleiðir að ná vopnum sínum eftir árásirnar 11. september 2001. Þeir sem voru svo djarfir að fjárfesta í félaginu eftir árásirnar náðu að ávaxta sitt pund vel. Eftir dapurlegt tímabil sýndi félagið loks hvers það var megnugt og reis upp á ný með methagnað í farteskinu eftir árið 2002. Nam hagnaður Flugleiða 2,6 milljörðum króna árið 2002, sem er afar góður árangur í ljósi þess að árið 2001 nam tap félagsins 1,2 milljörðum króna. Nýr samkeppnisaðili mætti svo inn á flugmarkaðinn í byrjun árs, þegar Iceland Express var kynnt til leiks.

***

Stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurnýjuðu stjórnarsamstarf sitt í annað sinn eftir að hafa hlotið fimm manna meirihluta í alþingiskosningum.

© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Verðsamráð olíufélaganna

Til tíðinda dró á olíumarkaði í júlí 2003 þegar Samkeppnisstofnun skilaði fyrri hluta frumskýrslu sinnar um meint samráð olíufélaganna þriggja eftir að hafa legið yfir málinu lengur en mörgum þótti eðlilegt. Svo fór að félögin voru öll fundin sek um verðsamráð, en forsvarsmenn þeirra mótmæltu niðurstöðum samkeppnisyfirvalda harðlega þegar þær voru fyrst kynntar.

***

Umskipti í íslensku viðskiptalífi héldu áfram þegar líða tók á árið. Eftir langvarandi baráttu Kaupþings- Búnaðarbanka við gamalgróna hluthafa í Skeljungi náði Kaupþing loks undirtökunum í þeim slag og fór svo að félagið var skráð úr kauphöll þar sem það uppfyllti ekki lengur skilyrði til skráningar. Skömmu síðar eignast óskabarn þjóðarinnar, Eimskip, nýja eigendur í Samson-hópnum. Ýtti hann til hliðar rótgrónum valdablokkum og gjörbreytti landslaginu á íslenskum hlutabréfamarkaði.

2004

Sögulegur atburður átti sér stað þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði lögum um eignarhald á fjölmiðlum staðfestingar. Má rekja upphaf málsins til þess að Jón Ásgeir Jóhannesson hafði gert sig breiðan á fjölmiðlamarkaði. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og fór það svo að lokum að lögin urðu ekki að veruleika.

***

Á árinu 2002 sameinuðust Íslandssími og Halló – Frjáls fjarskipti og hið sameinaða fyrirtæki keypti svo Tal. Ári síðar hlaut hið sameinaða félag nafnið Og Vodafone. Árið 2004 bregður svo til tíðinda því Norðurljós, móðurfélag Íslenska útvarpsfélagsins, keypti 35% hlut í félaginu í september. Seljandinn var CVC á Íslandi, sem var í eigu Kenneths Peterson. Í kjölfarið var skipt um fjóra stjórnarmenn af fimm og tók Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, við stjórnarformennskunni. Þegar þetta lá fyrir gerði forstjóri félagsins, Óskar Magnússon, stjórninni grein fyrir því að hann teldi rétt að einhver annar tæki við félaginu.

Iceland verslunarkeðjan er með fjölmargar verslanir á Bretlandseyjum.
Iceland verslunarkeðjan er með fjölmargar verslanir á Bretlandseyjum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Útrás í Bretlandi

Stjórnendur Baugs létu það ekki á sig fá þótt Arcadia-keðjan hefði runnið þeim úr greipum, því í árslok 2004 var greint frá því að félagið væri búið að ganga frá kaupum á breska fyrirtækinu Big Food Group. Innan samstæðunnar voru verslanakeðjurnar Iceland, Booker og Woodward. Með Baugi í kaupunum var félag í eigu Pálma Haraldssonar, Kevins Stanford, Tom Hunter, Burðaráss og Kaupþings. Kaupverðið var sagt vera 326 milljónir punda. Strax var hafist handa við að skipta Big Food Group upp, m.a. með sölu á Iceland-keðjunni og fasteignum félagsins. Kaupendur þessara eigna voru að stórum hluta sömu aðilar og stóðu að kaupunum á Big Food Group.

***

Þá er áhugavert frá því að segja að þetta ár var eignarskattur afnuminn. Þurfti ekki að bíða í nema sex ár eftir því að hann stingi aftur upp kollinum í formi auðlegðarskatts.

***

Nýjar reglur tóku gildi árið 2003 sem kváðu á um að laun forstjóra félaga í Kauphöll skyldu gerð opinber. Í samantekt Viðskiptablaðsins kom í ljós að stjórnendur KB Banka og Bakkavarar skáru sig nokkuð frá öðrum forstjórum. Stjórnendur bankans höfðu einnig gert kaupréttarsamninga við bankann og var það mat Viðskiptablaðsins á þeim tíma að þeir gætu skilað þeim Sigurði Einarssyni og Hreiðari Má Sigurðssyni 600 milljónum króna hvorum í kaupauka miðað við 15% árlega gengishækkun hlutabréfa bankans.

Nánar er fjallað um málið í 30 ára afmælisriti Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér.