Evrópska lestarfyrirtækið Eurostar hyggst bjóða upp á beinar lestarsamgöngur frá London til borga í Þýskalandi og Sviss. Fyrirtækið hefur tilkynnt að nýr floti lesta, sem samanstendur af allt að 50 lestum og kostar tvo milljarða evra, verði kominn á teinana eftir 2030.

Á vef BBC segir að ferðatíminn milli London og Frankfurt verði um fimm klukkustundir og mun þá taka fimm klukkustundir og 20 mínútur að ferðast frá London til Genfar.

Forstjóri Eurostar, Gewndoline Cazenave, segir að þrátt fyrir rekstraráskoranir og verðbólgu þá sé mikil eftirspurn eftir lestarferðum um alla Evrópu. „Ný gullöld alþjóðlegra sjálfbærra ferðalaga er komin.“

Eurostar þarf hins vegar að leysa nokkur tæknileg mál eins og að tryggja að það hafi nægilegt pláss fyrir fleiri lestir á stöð sinni í austurhluta London. Nýju lestirnar munu meðal annars leiða til 30% aukningar á lestum sem fara í gegnum London.

Það er ekki ljóst hvort lestarferðirnar munu innihalda viðkomu í öðrum borgum á leiðinni en Eurostar hyggst einnig tengja saman Genf við Amsterdam og Brussel.