Ársfundur Samáls fer fram á Hilton Nordica frá kl. 14-16 í dag. Formaður stjórnar Samáls, Hlöðver Hlöðversson fer yfir síðasta rekstrarár álveranna en þar meðal annars verður gerð grein fyrir töpuðum útflutningstekjum vegna skerðinga á raforku til álveranna.

Áætlað hafa þær skerðingar kostað samfélagið um 12 milljarða og enn meira sé litið til þess hve álframleiðsla hefur marga snertifleti við samfélagið með óbeinum áhrifum.

Á fundinum verður jafnframt fjallað um samhengi álframleiðslu á Íslandi og Evrópu og þau tækifæri sem gætu falist í leiðandi mörkuðum fyrir varning með lægra kolefnisspor, enda ál á Íslandi framleitt með lægst kolefnisspor í heimi.

Gestur fundarins verður Guðmundur Ben Þorsteinsson sem starfar sem Human og Organizational Performance Lead at Tesla Rd.  Á fundinum fer Guðmundur yfir mikilvægi áls í orkuskiptunum og fjallar þannig um álið frá sjónarhorni notenda.

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, flytur ávarp á fundinun og  umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, tekur þátt í pallborði.

Dagskrá:

Við gerum betur: Hlöðver Hlöðversson, formaður stjórnar Samáls og framkvæmdastjóri fjárfestinga Alcoa Fjarðaál

Álið, Ísland og Evrópa: Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls

Álið og orkuskiptin: Guðmundur Ben Þorsteinsson, Human & Organizational Performance Lead at Tesla Rd.

Ávarp: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson

Ávarp: Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson

Samtal um ál - pallborð:

Þátttakendur

Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

Ásgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri steypuskála Fjarðaáls

Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson

Guðmundur Ben Þorsteinsson, HOP lead at Tesla Rd.

Samtalinu stýrir Vigdís Diljá Óskarsdóttir, Stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi.

Fundarstjóri er Sólveig Kr. Bergmann, framkvæmdastjóri samskipta og samfélagsmála, Norðuráli.