Fimm norræn fyrirtæki eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna sem afhent verða í fyrsta skipti á ráðstefnu dönsku hugverkastofunnar í Kaupmannahöfn í dag kl. 12 að íslenskum tíma. Carbfix er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd.

Fyrirtækin fimm sem eru tilnefnd til verðlaunanna árið 2025 eru:

Ísland: Carbfix sem hefur þróað byltingarkennda og einkaleyfisvarða aðferð til að binda koltvísýring í bergi til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifum

Danmörk: SiteCover sem hefur þróað einkaleyfisvarðar yfirbyggingar fyrir byggingarstaði til að hægt sé að vinna við þurrar aðstæður óháð veðri. Uppistöður bygginganna virka einnig sem uppistöður fyrir hlaupaketti.

Finnland: Origin by Ocean sem hefur þróað einkaleyfisvarðar aðferðir til að vinna ýmis efni úr brúnþörungum, m.a. fyrir snyrti- og matvælaiðnað.

Svíþjóð: GreenIron sem hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að framleiða járn og aðra málma án þess að losa gróðurhúsalofttegundir.

Noregur: Cartesian sem hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að geyma og miðla varmaorku í byggingum og þannig spara orku og minnka orkukostnað.

Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, mun velja eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin.

Það fyrirtæki sem hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands hverju sinni er tilnefnt fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna.

Hægt er að fylgjast með verðlaununum hér.