Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða kynntar á viðburði Stjórnvísi á Grand Hótel sem hefst kl. 08:30 í dag. Þetta er í 24. skiptið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld og að þessu sinni verða birtar niðurstöður fyrir tólf atvinnugreinar. Beint streymi af viðburðinum er að finna hér að neðan.
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósent. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og þjónusta.
„Mæling sem þessi er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um,“ segir í tilkynningu Stjórnvísi.
Fundarstjóri er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi og stjórnarformaður Íslensku ánægjuvogarinnar. Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent kynnir niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2022, m.a. niðurstöður einstakra fyrirtækja og markaða og breytingar frá fyrri árum.