Kerecis hefur boðað til upplýsingafundar í Alþýðuhúsinu á Ísafirði vegna tíðindanna sem bárust fyrr í morgun um 175 milljarða króna yfirtökutilboðs danska félagsins Coloplast í allt hlutafé Kerecis. Fundurinn hefst kl. 9 og er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, verður með framsögu en fundarstjóri er Ólafur Ragnar Grímsson, stjórnarmaður Kerecis.
Horfa má á beina útsendingu frá fundinum hér að neðan.