Kosningafundur Samtaka atvinnulífsins, þar sem formenn stjórnamálaflokkanna taka þátt í pallborðsumræðum, hefst kl. 12:00.

„Við Íslendingar höfum tækifæri til að marka framtíð Íslands og næstu vikur skipta sköpum fyrir komandi ár. Ef efnahagslegur stöðugleiki, græn orkuöflun, og samkeppnishæfni atvinnulífsins verða sett á dagskrá þann 30. nóvember þegar við göngum til kosninga, munum við um leið leggja grunninn að næsta vaxtarskeiði Íslands,“ segir í kynningu SA um fundinn.

Á fundinum verður varpað ljósi á framtíðarsýn atvinnulífsins og áherslur ólíkra flokka og farið m.a. yfir niðurstöður oddvitakönnunar.

Umræðustjórar fundarins eru Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Ísak Einar Rúnarsson, forstöðumaður málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins.

Þau sem taka þátt í umræðum:

  • Inga Sæland
  • Sigurður Ingi Jóhannsson
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
  • Bjarni Benediktsson
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
  • Kristrún Frostadóttir
  • Svandís Svavarsdóttir