Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og áherslum bankans í greiðslumiðlun á fundi sem hefst kl. 9:30.

Fjármálastöðugleikanefnd tilkynnti í morgun um að hún hafi ákveðið að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5%.

Nefndin sagði að mikil óvissa í alþjóðamálum og auknar sveiflur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum gætu haft áhrif á efnahagshorfur hér á landi.

Seðlabankinn birti einnig ritið Greiðslumiðlun í morgun. Ritið er gefið út í fyrsta skipti en áður var umfjöllun um efnið í haustriti Fjármálastöðugleika. Í ritinu er greiðslumiðlun á Íslandi lýst, farið yfir áherslur Seðlabankans er snúa að greiðslumiðlun og framtíðarsýn hans.