Advania á Íslandi og Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir beinni útsendingu frá Kórnum þar sem rætt verður við aðila innan ferðaþjónustunnar og aðra gesti í tilefni af Mannamótum Markaðsstofa landshlutanna sem er mikilvægur hluti af Ferðaþjónustuvikunni á ári hverju.
Útsending hefst kl. 10 og stendur yfir til kl. 14 í dag. Nálgast má streymi og dagskrá viðburðarins neðar í fréttinni.
Ferðaþjónustuvikan fer fram dagana 14. til 16. janúar þar sem áhersla er lögð á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni. Í dag fara fram Mannamót Markaðsstofa landshlutanna í Kórnum í Kópavogi.
Markmið og tilgangur Mannamóta er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mynda tengsl.
Dagskrá
- 10:00 - Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Bergrós Guðbjartsdóttir frá Hótel Akureyri
- 10:20 - Alexandra Tómasdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og Auður Vala Gunnarsdóttir, frá Blábjörg Resort
- 10:40 - Þuríður Aradóttir Braun, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness og Kristján Pétur Kristjánsson frá Hótel Konvin
- 11:00 - Ragnhildur Sveinbjarnadóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands og Ragnhildur Ágústsdóttir hjá Lava Show
- 11:20 - Sölvi Guðmundsson teymisstjóri hjá Vestfjarðastofu og Gunnþórunn Bender hjá Westfjord Adventures
- 11:40 - Kristján Guðmundsson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Vesturlands og Herborg Svana Hjelm, hótelstjóri Hótel Varmalands
- 12:00 - Jóhannes Þór Skúlason frá Samtökum ferðaþjónustunnar
- 12:20 - Inga Hlín Pálsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og Helgi Eysteinsson frá Iceland Travel
- 12:40 - Oddný Arnarsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu
- 12:50 - Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
- 13:20 - Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri
- 13:40 - Halldór Óli Kjartansson, sýningarstjóri Mannamóta og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir frá Íslenska ferðaklasanum