Rætt verður um sölu íslenskra fyrirtækja til kínverskra neytenda í netverslun á morgunfundi Íslandsstofu og Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV) sem haldinn er í tengslum við aðalfund ÍKV. Finna má streymi af fundinum, sem stendur yfir frá kl. 08:30-10:30, hér að neðan.

„Kínverjar eru duglegir að selja Íslendingum vörur á netinu en viðskiptin í hina áttina eru ekki eins mikil. Mörg íslensk fyrirtæki telja vörurnar sínar eiga erindi við kínverska markaðinn en flestir reka sig á að málið er mun flóknara en að opna bara sölusíðu á netinu. Hvað þarf að gera til að koma vörunni sinni á framfæri við kínverska neytendur?,“ segir í lýsingu á fundinum.

Dagskrá:

  • „Cracking the complex code – how to succeed with e-commerce in China“ - Joakim Abeleen, viðskiptafulltrúi og markaðsstjóri Business Sweden í Kína
  • „Víðtæk aðstoð við vöxt erlendis - Samstarf Íslandsstofu og Business Sweden“ - Ágúst Sigurðarson, fagstjóri útflutningsþjónustu hjá Íslandsstofu
  • „Er hægt að selja Kínverjum fisk á netinu?“ - Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags og áður framkvæmdastjóri Blámars
  • „Frá hugmynd til netverslunar í Kína“ - Óskar Þórðarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Omnom Chocolate
  • „How to make an Icelandic brand work in the China market“ - David Tong Li, stjórnarformaður Ísmoli Marketing Group