Lögmaður 16 fjölskyldna sem misstu ættingja í flugslysi Boeing 737 Max-vélar í Indónesíu árið 2018 hefur lýst fyrirhuguðum samningi milli Boeing og bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem siðferðislega ógeðfelldum.

Á vef BBC segir að Boeing hafi samþykkt að greiða 1,1 milljarð dala til að forðast sakfellingar vegna tveggja flugslysa sem urðu 346 manns að bana.

Sanjiv Singh, lögmaður fjölskyldumeðlima slyssins, segir að samningurinn geri fyrirtækinu kleift að forðast það að taka raunverulega ábyrgð á málinu. Samningurinn felur í sér 444,5 milljóna dala greiðslu til fjölskyldna fórnarlamba slyssins.

„Ef þú horfir á þessa upphæð, þá er það í raun eins og Boeing hafi greitt 10 dali til að komast undan ábyrgð. Það er eins og fyrirtækið hafi fengið ekkert annað en minniháttar bílastæðasekt,“ segir Singh.

Verði samkomulagið samþykkt af bandarískum alríkisdómara mun Boeing komast undan réttarhöldum tengdu málinu.