Fasteignafélagið Bergey hefur fest kaup á Herkastalanum við Kirkjustræti 2 sem hýsti höfuðstöðvar Hjálpræðishersins í rúma öld frá því húsið var reist. Bergey áformar að þróa eignina áfram til framtíðar og gera þar hótel.
Herkastalinn hefur verið rekinn sem gistiheimili undanfarin ár og eru þar nú 54 herbergi. Bergey hefur þegar samið við rekstraraðila sem mun taka við rekstrinum. Fasteignafélagið segir að um sé að ræða aðila með mikla reynslu af rekstri gistiheimila og sem þegar rekur nokkur gistiheimili í miðborg Reykjavíkur.
„Herkastalinn er án efa ein fallegasta bygging Reykjavíkur og á sér merkilega sögu. Bergey hefur metnað til að hlúa vel að slíkum byggingum og við sjáum mikil tækifæri í bæði staðsetningu og húsinu sjálfu. Við ætlum að vanda okkur í vinnunni fram undan og sjáum fyrir okkur hótelrekstur og fjölbreytta starfsemi í húsinu á næstu árum,“ segir Magnús Berg Magnússon, stjórnarformaður Bergeyjar.
Kirkjustræti 2 var byggt árið 1916 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts og er talið fyrsta stórvirki hans í steinsteypu. Upphaflega var húsið tvílyft, en árið 1929 var tveimur hæðum bætt við. Húsið er 1.405 fermetrar að stærð og skiptist í kjallara, þrjár hæðir og rishæð. Það er friðað að utan vegna menningarlegs og sögulegs gildis.

Kaup Herkastalans eru sögð í samræmi við stefnu Bergeyjar um að eignast og endurvekja sögufrægar byggingar í miðborg Reykjavíkur.
Félagið keypti nýverið Austurbæjarbíó við Snorrabraut og stendur einnig að endurbyggingu Mjólkurstöðvarinnar við Snorrabraut 54. Þá hefur Bergey áður ráðist í metnaðarfullar endurbætur á Ránargötu 4A, sem hýsti áður eitt elsta hótel borgarinnar, City Hotel, en þar er nú rekið hótelið Local 101.
Fasteignasafn Bergeyjar telur nú yfir 15 þúsund fermetra og samanstendur af vel staðsettu verslunar- og þjónustuhúsnæði, hótelum, skrifstofuhúsnæði og iðnaðarhúsnæði.