Íslenska leikjafyrirtækið Bunkhouse Games hefur tilkynnt nýjan hasarleik úr smiðju fyrirtækisins. Leikurinn ber nafnið Flock Off og verður fáanlegur á leikjaforritinu Steam á fjórða ársfjórðungi þessa árs.
Í tilkynningu segir að leikurinn gerist á skoska hálendinu þar sem tilraun til klónunar fór úrskeiðis. Fjórar ólíkar hetjur þurfa svo að vinna saman til að berjast gegn uppvakningakindum.
Bunkhouse Games segir að allt geti verið notað sem vopn í leiknum, þar á meðal vinir spilara. Til að mynda sé hægt að nota umferðarkeilur, götuskilti, slátturvélar, lauka og margt fleira. Fyrirtækið lýsir leiknum sem fyndnum og hlaðnum óreiðu.
„Leikurinn, sem er með stuðning fyrir allt að fjóra spilara, leyfir þér að upplifa sturlaðan hasar þar sem hlutirnir geta orðið ansi skrítnir. Hann er hannaður með endurspilanleika í huga og þú getur átt von á því að rifja upp sprenghlægileg augnablik með vinum löngu eftir að leiknum lýkur,“ segir í tilkynningu.