Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafa ritað forstöðumönnum hjá ríkinu bréf þar sem óskað er eftir hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins.

Forstöðumenn eru beðnir um tillögur að hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og sameiningu stofnana.

„Fjallað verður um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem berast frá forstöðumönnum í starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Niðurstöður þeirrar vinnu verða nýttar til að móta áætlun til lengri tíma um umbætur í rekstri ríkisins. Samhliða verður unnið með tillögur úr fyrri samráðsferlum við stjórnendur og starfsfólk ríkisins,“ segir í tilkynningu forsætis- og fjármálaráðuneytisins.

Samráð við forstöðumenn hjá ríkinu um hagræðingu í rekstri ríkisins kemur til viðbótar við samráð við almenning. Nú þegar hafa rúmlega þrjú þúsund umsagnir borist í Samráðsgátt stjórnvalda en samráðið stendur til 23. janúar nk.