Bílaframleiðsla í Bretlandi hefur dregist saman um þriðjung miðað við sama tíma í fyrra en Bretar hafa framleitt aðeins 49.810 bíla það sem af er ári. Á vef BBC segir að bílaframleiðsla þar í landi hafi ekki verið minni síðan 1949.

Þar segir jafnframt að meginástæðan fyrir þessari þróun sé viðskiptastríð Donalds Trumps en þeir 25% tollar sem forsetinn lagði á hafa haft mikil áhrif á útflutning breskra bíla.

Aftur á móti stendur til að lækka innflutningsgjöld á breska bíla í lok mánaðar og að sögn bresku bílasamtakanna, Society of Motor Manufacturers and Traders, er það merki um örlitla bjartsýni.

Fyrirtæki eins og Jaguar Land Rover neyddust til að stöðva útflutning til Bandaríkjanna í apríl og þurfti Aston Martin einnig að minnka útflutning eftir tollaálagninguna. Framleiðslan hefur þó einnig orðið fyrir barðinu á yfirfærslu þessara fyrirtækja yfir í rafbílaframleiðslu.