Bjarnason Holding ehf., eignarhaldsfélag Birkis Bjarnasonar knattspyrnumanns, hagnaðist um 33 milljónir króna í fyrra, samanborið við 21 milljón króna árið áður.
Eignir félagsins voru bókfærðar á 690 milljónir króna í árslok 2024. Eigið fé var um 129 milljónir króna og skuldir 561 milljón, en þar af voru skuldir við tengda aðila 532 milljónir. Félagið fjárfesti fyrir 220 milljónir króna í fyrra.
Meðal eigna félagsins í lok síðasta árs voru eignarhlutir í öðrum félögum ríflega 300 milljónir, eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 85 milljónir, fjárfestingareignir að virði 128 milljónir og verðbréf að andvirði 170 milljónir króna.
Í eignasafni Bjarnason Holding er m.a. 13% hlutur í Skógarböðunum í Vaðlaheiði gegn Akureyri og 10% hlutur í hugbúnaðarhúsinu Stefnu.