Ríkisstjórnin hefur gert samning við Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) um sérstaka Matvörugátt þar sem neytendur geta fylgst með verði á helstu neysluvörum stærstu matvöruverslana landsins.

Vinna stendur nú yfir við að setja upp gáttina og mun hún opna almenningi á næstu vikum, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Samningurinn, sem var undirritaður í Ráðherrabústaðnum í dag, er á milli menningar- og viðskiptaráðuneytisins og RSV en ráðuneytið leggur 10 milljónir króna til verkefnisins.

„Gáttin er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sem gerðir voru á almennum vinnumarkaði í desember þar sem kveðið er á um að veittur verði stuðningur til að auka aðhald á neytendamarkaði með því að bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags og skapa þannig hvata fyrir fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum,“ segir í tilkynningunni.

Gáttin, sem verður aðgengileg á slóðinni verdgattin.is, mun sýna verð dagsins á fjölda vörutegunda, þróun á verði og samanburð milli verslana. Neytendur eiga því að geta sett saman sína innkaupakörfu í gáttinni og fengið samanburð á verði hennar milli verslana. Auk þess munu þeir geta séð þróun vöruverðs frá ársbyrjun 2023.

„Stuðningur við aukið aðhald á neytendamarkaði er mikilvægur liður í aðgerðum stjórnvalda vegna nýgerðra kjarasamninga til að vinna gegn verðbólgu og tryggja kaupmátt. Með því stuðlum við að virkara beinu eftirlit neytenda með vöruverði en við núverandi aðstæður er ekki síst brýnt að söluaðilar sýni ábyrgð og gæti hófs í verðlagningu á vörum sínum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

„Aukið gagnsæi og markviss upplýsingagjöf er eitt besta verkfæri sem hægt er að beita í þágu skilvirkari samkeppnis- og neytendamála. Matvörugáttin skiptir máli á þeirri vegferð að stemma stigu við verðbólgunni og auka gagnsæi á dagvörumarkaði. Með henni munu neytendur geta fylgst með daglegu matvöruverði á einum stað, rétt eins og þeir hafa getað fylgst með bensínverði á sambærilegum síðum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.