Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, að því er segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins. Breytingarnar voru ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Með breytingunum verða jafnréttis- og mannréttindamál flutt frá forsætisráðuneytinu yfir á málefnasvið félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.

Þá færist þjóðgarðurinn á Þingvöllum yfir á málefnasvið forsætisráðuneytisins frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Einnig verða gerðar breytingar á forsetaúrskurðinum í samræmi við nýlega samþykkt lög á síðasta löggjafarþingi. Tillaga um breytingar á forsetaúrskurðinum verður lögð fyrir forseta Íslands á næstu dögum en gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. september.