Svissneska ferðaskrifstofan Kontiki hefur ákveðið að bjóða upp á vetrarferðir til Norðurlands í beinu flugi frá Zurich. Þetta verður í fyrsta sinn sem ferðaskrifstofan býður ferðir beint til Norðurlands.
Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands segir að boðið verði upp á vikulegar ferðir í febrúar og mars á næsta ári.
„Kontiki hefur einsett sér að stuðla að sjálfbærri þróun ferðaþjónustu á Norðurlöndum og hefur tekið virkan þátt í henni. Til að sýna það í verki höfum við ákveðið að hefja þetta verkefni á Norðurlandi með sjálfbærni efst á blaði í samvinnu við Markaðsstofu Norðurlands,“ segir í tilkynningu frá Kontiki.
Á síðasta ári voru Markaðsstofa Norðurlands og Kontiki í samstarfi í sérstöku verkefni um sjálfbæra þróun áfangastaðarins Norðurlands, og meðal annars var haldin vinnustofa í Hofi á Akureyri sem fulltrúar Kontiki stjórnuðu.
„Áherslur Kontiki ríma mjög vel við áherslur norðlenskrar ferðaþjónustu um aukna uppbyggingu yfir vetrartímann, sem stuðlar að fjölgun heilsársstarfa í ferðaþjónustu og minni árstíðasveiflu. Fyrirtæki á Norðurlandi fá þarna tækifæri til að stuðla enn frekar að sjálfbærri ferðaþjónustu, sem mun koma öllu samfélaginu til góða,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.