Bláa lónið verður lokað í eina viku frá og með deginum í dag. Lokunin stendur yfir til 16. nóvember kl. 07.00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Meginástæðurnar fyrir lokun eru truflun á upplifun gesta í nótt, en mikil skjálftavirkni var eftir miðnætti, og langvarandi aukið álag á starfsmenn.
Tilkynningin í heild sinni er eftirfarandi:
„Bláa Lónið hf. hefur ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið - staðan verður metin í framhaldinu. Lokunin mun taka gildi 9. nóvember og standa til kl. 07:00, 16. nóvember.
Truflun á upplifun gesta í nótt og langvarandi aukið álag á starfsmenn eru meginástæður lokunarinnar. Bláa Lónið hf. mun fylgjast með framgangi hræringanna næstu sólarhringa og meta stöðuna.
Okkar frábæru og tryggu starfsmenn fá greidd full laun meðan á lokun stendur og gestir fulla endurgreiðslu.“