Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er blað sem Keldan og Viðskiptablaðið gefa út árlega til heiðurs fyrirtækjum með sterkan rekstur.

Auk lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki eru í blaðinu fjölmörg viðtöl, greiningar og fróðlegt talnaefni. Fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin í ár eru 1.407, en voru 1.070 í fyrra.

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2022 og 2021 en rekstrarárið 2020 er einnig notað til viðmiðunar.

  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2022 og 2021.

  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 40 milljónir króna á rekstrarárunum 2022 og 2021.

  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2022 og 2021.

  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

  • Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgir Viðskiptablaðinu. Blaðið er opið öllum og hægt er að skoða það hér.