Sögulegur atburður átti sér stað í lok síðasta árs er Icelandair tók í fyrsta sinn farþegaþotu frá flugvélaframleiðandanum Airbus inn í flota sinn. Síðan hafa þrjár Airbus A321LR þotur bæst við flotann og flaug sú nýjasta jómfrúarflugið í síðustu viku. Þrjár til viðbótar munu svo bætast við flotann sumarið 2027. Þeim til viðbótar bætast svo Airbus A321XLR þotur við flotann sumarið 2029.

„Við erum mjög ánægð með innleiðingu Airbus vélanna, sem var vel undirbúin af starfsfólki félagsins. Það hefur gengið mjög vel að koma nýju vélunum inn í reksturinn og viðtökur starfsfólks og farþega verið frábærar. Airbus vélarnar búa til spennandi tækifæri fyrir félagið okkar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og bætir við að sama ánægja ríki með Boeing 737 MAX vélarnar sem hafa verið hluti af flota félagsins frá árinu 2018.

Spurður um framtíðaráform í flotamálum, þ.e. hvort félagið stefni á að vera með blandaðan flota af þotum frá Boeing og Airbus eða hvort Airbus muni hægt og rólega taka yfir allan flotann, segir Bogi enga endanlega ákvörðun hafa verið tekna í þeim efnum. „Við erum með þrjár Boeing 767 breiðþotur sem við höfum tekið ákvörðun um að hætta rekstri á haustið 2029. Í kjölfarið mun engin breiðþota verða eftir í farþegaþotu flota félagsins og öll áherslan verður á mjóþotur (e. narrow body aircraft). Í dag eru svo tuttugu og ein Boeing 737 MAX þota í flotanum og átta Boeing 757 þotur en við höfum verið að fækka þeim talsvert á undanförnum árum. Airbus vélarnar munu svo taka endanlega við af þeim eftir sumarið 2027.“

Sumarið 2028 mun Icelandair því vera með tvær tegundir af mjóþotum í rekstri. Boeing 737 MAX og svo Airbus þoturnar. „Við stöndum frammi fyrir tveimur mjög góðum kostum. Annars vegar að vera áfram með Boeing 737 MAX sem kjarnaflugvél í flugleiðum til Evrópu og austurstrandar Bandaríkjanna og vera svo með flota af Airbus vélum, bæði XLR og LR, sem eru þá fyrst og fremst nýttar í lengri flugum. Hins vegar er möguleiki á að skipta alfarið yfir í Airbus og þá myndu væntanlega Airbus 320 þotur taka við af Boeing 737 MAX þotunum.“

Síðari möguleikinn væri að sögn Boga einfaldari og hagkvæmari. Aftur á móti búi Boeing 737 MAX þoturnar yfir eiginleikum sem henti leiðarkerfi Icelandair mjög vel. Félagið vinni hörðum höndum að því að greina hvaða kostur henti því best til framtíðar. „Einfaldleiki og hagkvæmni eru rétt eins og í öðrum rekstri mikilvægir þættir í flugrekstri. Aftur á móti benda greiningar okkar til þess að Boeing 737 MAX þoturnar búi yfir eiginleikum sem vegi upp á móti einfaldleikanum. Þetta er því ekki einföld ákvörðun en við munum að lokum þurfa að taka endanlega ákvörðun. Ég reikna með að hún muni liggja fyrir innan ekki of langs tíma.“

Fyrsta Airbus flugvélin í sögu Icelandair lenti á Keflavíkurflugvelli 3. desember sl. Flugvélin er af gerðinni A321LR og ber nafnið Esja.
Fyrsta Airbus flugvélin í sögu Icelandair lenti á Keflavíkurflugvelli 3. desember sl. Flugvélin er af gerðinni A321LR og ber nafnið Esja.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.