Blue Car Rental skrifaði á dögunum undir samning við hugbúnaðarhúsið Snjallgögn um þróunarsamstarf á sviði gervigreindar. Stjórnendur fyrirtækjanna telja að mörg tækifæri til framtíðar liggi í tæknilausnum fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Magnús Þór Magnússon, viðskiptaþróunarstjóri Blue Car Rental, segir að bílaleigan hafi alla tíð einblínt á gögn og tækni og sé að gera sitt besta til að vera leiðandi á markaði þegar kemur að nýjum hugmyndum og tækninýjungum í þjónustu við viðskiptavini.
„Við erum afskaplega spennt fyrir samstarfinu við Snjallgögn því við trúum því að gervigreindin eigi eftir að umbylta starfsemi ferðaþjónustu á heimsvísu og efla bæði þjónustuveitendur og notendur til að gera góða upplifun enn betri,“ segir Magnús Þór.
Blue Car Rental ehf. er ein af stærri bílaleigum landsins með um 100 starfsmenn og 6,2 milljarða veltu árið 2023. Frá stofnun fyrirtækisins fyrir fimmtán árum hefur það þjónustað um eina milljón ferðamanna. Til viðbótar við útleigu á bílum rekur fyrirtækið meðal annars sprautu- og þjónustuverkstæði.
„Snjallgögn hafa um árabil verið í nánu þróunarsamstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, sem nota gervigreindarlausnir okkar til að fást við milljónir fyrirspurna á ársgrundvelli. Þjónustugreind er nafnið sem við notum yfir þennan tiltekna hluta af lausnavöndlinum okkar, Context Suite,“ segir Stefán Baxter, forstjóri Snjallgagna.
Sprotafyrirtækið Snjallgögn ehf. er tíu manna hugbúnaðarhús í Reykjavík, sem þróar fjölbreyttar gervigreindarlausnir fyrir atvinnulífið. Meðal viðskiptavina fyrirtækisins í dag eru Arctic Adventures, Bónus, Elko, Nova, RARIK og Skatturinn. Fjárfestar að baki Snjallgagna eru Founders Ventures, MGMT Ventures, Tennin, Icelandic Venture Studio og Bright Ventures.