Forsætisráðherra, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra kynntu tillögur að nýju kerfi um atvinnuréttindi útlendinga utan EES á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag.

Í tilkynningu ríkisstjórnarinnar segir að þörf sé á nýrri nálgun fyrir fólk utan EES-svæðisins sem vilji flytja hingað til lands, búa hér og starfa.

„Núverandi fyrirkomulag er flókið og byggist á óskilvirkum ferlum, ákvarðanataka innan þess er tilviljanakennd þar sem hún grundvallast á óljósu mati á vinnumarkaði og of þröngar skorður eru settar fyrir veitingu atvinnuleyfa.“

Starfshópur sem Katrín Jakobsdóttir skipaði leggur fram fjórar tillögur. Þær eru að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuleyfi, einfalda stjórnsýslu með sameiningu dvalar- og atvinnuleyfa, einfalda umsóknarferli um dvalarleyfi með stafvæðingu og að tryggja aukinn fyrirsjáanleika með spá um mannaflaþörf.

Hópinn skipuðu Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri, formaður, Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri. Starfsmaður hópsins var Gunnar Narfi Gunnarsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu. Auk þess tóku Bergþóra Benediktsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, og Teitur Björn Einarsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, þátt í störfum hópsins.

„Engar vísbendingar eru um annað en að Ísland verði að treysta á aðflutt fólk til að manna fjölmörg störf sem verða til á komandi árum og áratugum til að halda uppi lífsgæðum og velsæld í íslensku samfélagi. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem koma hingað til lands er að leita að bættum lífsgæðum og að verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi og mikilvægt er að íslenskur vinnumarkaður verði aðgengilegri þeim sem hingað vilja koma,“ segir í tilkynningunni.

Tillögurnar eru eftirfarandi:

Reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga verði rýmkaðar - Gerðar verði ýmsar breytingar til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga í því skyni að gera Ísland að eftirsóknarverðari og samkeppnishæfari kosti fyrir erlenda starfsmenn og nema utan EES, gera íslenskt samfélag fjölbreyttara og um leið styrkja efnahagslífið til framtíðar.

Fyrirsjáanleiki verði tryggður með spá um mannaflaþörf - Nýju kerfi verði komið á fót sem taki mið af mannaflaþörf. Vinnumálastofnun greini þörf vinnumarkaðar að fenginni ráðgjöf utanaðkomandi sérfræðinga og aðila vinnumarkaðarins sem staðfest verði af félags- og vinnumarkaðsráðherra. Samhliða verði eftirlit með félagslegum undirboðum eflt. Vinnuskiptasamningum við önnur ríki verði fjölgað.

Stjórnsýsla verði einfölduð með sameiningu dvalar- og atvinnuleyfa - Dvalarleyfi, sem eru gefin út af Útlendingastofnun, og atvinnuleyfi, sem eru gefin út af Vinnumálastofnun, verði sameinuð í dvalarleyfi sem skipt verði í ólíka flokka og gefin út af Útlendingastofnun.

Umsóknarferli um dvalarleyfi verði einfaldað og bætt með stafvæðingu - Til að gera umsóknarferlið aðgengilegra fyrir umsækjendur sem og að auðvelda úrvinnslu umsókna í nýju kerfi eru lögð til metnaðarfull áform til að hraða stafvæðingu. Með aukinni sjálfvirknivæðingu umsóknarferlisins, sem byggir á stafvæðingu, verður hægt að tryggja styttri málsmeðferðartíma, auðvelda gagnaúrvinnslu og auka yfirsýn yfir gögn um umsækjendur.