Stjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur samþykkt einróma að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn í VR í ljósi atkvæðagreiðslu VR um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli.
„Verkbann mun, ef til þess kemur, ná til alls skrifstofufólks sem aðild á að VR og fellur undir almennan kjarasamning SA og VR,“ segir í tilkynningu SA.
Áréttað er að fresti forysta VR boðuðum verkföllum muni SA að sama skapi fresta verkbannsaðgerðum.
Verkbannið þrýsti á forystu VR
Forysta VR hóf atkvæðagreiðslu um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Fyrstu lotu verkfalls er ætlað að standa í þrjá sólarhringa, frá kl. 00:01 föstudaginn 22. mars til kl. 23:59 sunnudaginn 24. mars.
SA segja að aðgerðunum virðist ætlað að brjóta þá launastefnu sem var nýverið mörkuð með Stöðugleikasamningnum, „launastefnu sem forysta VR tók sjálf þátt í að móta“.
„Tilgangur boðaðs verkbanns af hálfu SA er að þrýsta á forystu VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum í takt við þá stefnu sem þegar hefur verið mörkuð. Tilgangur verkbannsins er að verja tækifærið til að ná efnahagslegum stöðugleika,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.
Launagreiðslur félagsfólks VR falla niður
Í tilkynningu SA segir að samhverfa sé í vinnulöggjöfinni varðandi vinnustöðvanir og er verkbann úrræði atvinnurekanda í vinnudeilum „sem Samtök atvinnulífsins eru óhrædd við að beita“.
Verkbann sé sambærilegt verkfalli og þýðir að félagsfólk VR mætir ekki til starfa og launagreiðslur falla niður. Veittar verða undanþágur frá verkbanni vegna nauðsynlegrar grunnþjónustu.
SA segja að í stað þess að forysta VR lami starfsemi tiltekinna fyrirtækja og atvinnugreina með verkföllum fárra félagsmanna muni samtökin með verkbanni auka þrýsting á VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum.
„Við höfum gengið frá Stöðugleikasamningi við öll stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði,“ segir Sigríður Margrét.
„Stöðugleikasamningurinn er fjögurra ára kjarasamningur sem tryggir launafólki 3,25-3,5% árlegar launahækkanir með 23,750 kr. lágmarki. Markmið samningsins eru að ná niður verðbólgu og stuðla að því að skilyrði skapist til vaxtalækkana en þeim markmiðum stendur ógn af boðuðum skæruverkföllum í tengslum við sérkjarasamning sem leiðir af aðalkjarasamningi VR.“
Tæki gildi á föstudaginn í næstu viku
Atkvæðagreiðsla um verkbann hefst meðal allra aðildarfyrirtækja SA hóst í dag kl. 12:00 og upplýsingafundur hefst í kjölfarið kl. 14:00. Atkvæðagreiðslan stendur til kl. 14 á fimmtudaginn, 14. mars.
Verði verkbann samþykkt mun það taka gildi föstudaginn 22. mars kl. 00:01, þ.e. á sama tíma og verkfalli VR er ætlað að hefjast.