Innviðaráðuneytið hyggst leggja fram reglugerð um reiki til að koma í veg fyrir óhóflegt gjald fyrir farnetsþjónustu yfir landamæri Bretlands og Norður Írlands. Þetta kemur fram í Samráðsgátt stjórnvalda.

Gert er ráð fyrir að reglugerðin taki þegar gildi 1. október 2025.

Ráðuneytið segir að aðeins eitt lítið símafyrirtæki hér á landi hafi nýtt sér ákvæði í viðauka við fríverslunarsamning Íslands, Liectensteins og Noregs og Bretlands og Norður Írlands sem tók gildi þann 1. júlí 2023. Ákvæðið feli í sér að ferðamenn sem fara milli landanna þurfi ekki að borga viðbótar símagjöld við það eitt að fara yfir landamæri Bretlands.

„Samningurinn átti að tryggja þetta. Það hefur hann ekki gert í raun. Aðeins eitt lítið símafyrirtæki hefur nýtt sér þessa sérstöðu á markaðinum en það félag hefur mjög litla markaðshlutdeild,“ segir ráðuneytið.

Bent er á að með ákvæðinu hafi verið horft til þess að svokölluð „Roam Like Home“ þjónusta (einstaklingar greiði sama gjald fyrir notkun farnets innan svæðisins líkt og þeir væru heima hjá sér) standi íslenskum neytendum einnig til boða í Bretlandi og Norður-Írlandi, líkt og þegar ferðast er til landa innan Evrópusambandsins.

Þar sem Bretland fór úr ESB gildir Roam Like Home-reglugerðin ekki lengur um Bretland.

Fylgja í fótspor norskra stjórnvalda

Áform innviðaráðherra fylgir í kjölfar þess að Fjarskiptastofa komst að þeirri niðurstöðu í byrjun maímánaðar að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæði fjarskiptalaga með því að bjóða ekki upp á innanlandsverðskrá í smásölu (Roam Like Home) fyrir reikiþjónustu i Bretlandi.

Fjarskiptastofu hafði borist kvörtun frá neytanda sem laut að gjaldskrá Símans fyrir reikiþjónustu í Bretlandi. Síminn býður upp á sérstakan útlandapakka sem kostar um 1.000 kr. á dag þegar internetþjónusta í Bretlandi er notuð.

Í kvörtuninni segir að bresk fjarskiptafyrirtæki bjóði viðskiptavinum sínum Roam Like Home þegar þeir ferðast til Íslands. Síminn sagði hins vegar að eftir því sem það kemst næst, séu flest bresku fyrirtækin farin að innheimta fyrir reiki innan EES.

Í ákvörðuninni kemur fram að í kjölfar viðskiptasamnings Íslands og Noregs við Bretland um hámarksheildsöluverð fyrir reiki ákvað Noregur að ganga lengra og skylda smásala til að veita Roam Like Home-þjónustu í Bretlandi.

„Þetta er ástæðan fyrir því að norsk fjarskiptafyrirtæki bjóða enn upp á Roam Like Home-þjónustu í Bretlandi. Íslensk stjórnvöld hafa ekki sett slíka skyldu í lög eða reglugerð, sem þýðir að íslenskir neytendur njóta ekki sömu réttinda og norskir neytendur hvað varðar reikiþjónustu í Bretlandi.“

Síminn: Gjaldinu velt yfir á alla

Í svarbréfi Símans við erindi Fjarskiptastofu segist símafyrirtækið hafa í gegnum tíðina leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum hagstæð kjör á ferðalögum sínum erlendis með því að semja um betri kjör við fjarskiptafyrirtæki.

„Með þessum hætti getur Síminn boðið viðskiptavinum sínum upp á Ferðapakka sem nær til fjölda landa, s.s. til Bretlands, Sviss, Bandaríkjanna. Síminn telur þetta sanngjarna leið en það eru ekki allir viðskiptavinir Símans sem fara til framangreindra landa.

Ef ríkin yrðu sett sem hluti af „Roam Like Home“ gjaldinu væri raunverulega verið að velta kostnaðinum yfir á alla.“

Síminn segist hafa lagt mikinn metnað í að tryggja framúrskarandi fjarskiptakerfi og þjónustu fyrirtækisins á sviði farsímaþjónustu sé meðal þess fremsta sem þekkir í heiminum.

„Þeim árangri er ekki náð nema með verulegum fjárframlögum en að sama tíma er verðlagning í farsímaþjónustu hagkvæm á Íslandi.“