Flugvélaframleiðandinn Boeing skilaði ársuppgjöri fyrir opnun markaða vestanhafs í dag en reikningur félagsins sýnir tap upp á tæplega 12 milljarða bandaríkjadala.
Mun það vera mesta tap félagsins frá árinu 2020.
Samkvæmt uppgjörinu, sem Reuters greinir frá, má rekja tapið til fjölþættra vandamála í framleiðslu- og varnarmáladeild félagsins. Þá höfðu verkföll starfsfólks í verksmiðjum Boeing á vesturströnd Bandaríkjanna einnig mikil áhrif.
Kelly Ortberg, sem tók við sem forstjóri félagsins í ágúst síðastliðnum, hefur fengið það verkefni að snúa rekstri Boeing við.
Tap félagsins undirstrikar erfiðar aðstæður í baráttunni við helsta keppinautinn Airbus, ásamt því að félagið hefur verið undir miklu eftirliti eftirlitsaðila og viðskiptavina eftir fjölmörg mistök undanfarinna ára.
Fjórði ársfjórðungur 2024 reyndist Boeing sérstaklega erfiður, þar sem félagið skilaði 3,86 milljarða dala tapi vegna óvæntra gjalda í tengslum við nokkur varnartengd verkefni.
Þá drógust tekjur saman um 31% á fjórðungnum og námu 15,24 milljörðum dala, en spár höfðu gert ráð fyrir 16,21 milljarði dala.
Félagið eyddi einnig um 14,3 milljörðum dala af eigin fé á árinu 2024, miðað við jákvætt 4,43 milljarða dala fjárflæði árið 2023.
Ortberg sagði í samtali við fjölmiðla í dag að unnið væri að því að koma á stöðugleika í framleiðsluferlum félagsins.
Hann lagði áherslu á að Boeing hefði lagt fram fjögurra þátta áætlun til að snúa rekstrinum við, þar á meðal áætlun til að laga fyrirtækjamenningu félagsins, sem hann kallaði „lífsnauðsynlega breytingu.“
Framleiðsla á 787 Dreamliner-flugvélum hefur gengið ágætlega og skilaði félagið fimm flugvélum á einum mánuði í lok árs 2024.
Þungur róður frá 2019
Boeing hefur verið í miklum fjárhagsvandræðum undanfarin ár, en félagið hefur tapað meira en 30 milljörðum dala frá 2019 eftir tvö mannskæð slys sem tengdust 737 MAX-flugvélum þess.
„Við höfum unnið djúpstæðar greiningar á öllum okkar erfiðu verkefnum,“ sagði Ortberg í bréfi til starfsmanna á þriðjudag. „Við erum núna skýrari og meðvitaðri um áhættuna í þessum verkefnum.“
Þrátt fyrir áskoranirnar leggur Ortberg áherslu á að Boeing muni smám saman vinna sig út úr erfiðleikunum og endurheimta traust bæði markaðarins og viðskiptavina.