Meirihluti borgarráðs samþykkti í gær tillögu velferðarráðs borgarinnar um að leiga Félagsbústaða verði hækkuð um 1,5% frá og með 1. maí 2025. Málið fer nú til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar, að því er segir í fundargerð borgarráðs.
Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Félagsbústaðir kölluðu eftir 6,5% hækkun
Félagsbústaðir, dótturfélag Reykjavíkurborgar, leigja út ríflega 3.100 íbúðir en það telst vera ríflega 5% af heildarfjölda íbúða í Reykjavík.
Líkt og Viðskiptablaðið hefur greint frá hafa Félagsbústaðir kallað eftir heimild til að hækka leiguverð í meira en eitt og hálft ár, en velferðarráð Reykjavíkurborgar virðist ekki hafa tekið formlega fyrir tillögu um leiguverðshækkun fyrr en á fundi 13. janúar síðastliðinn þegar lögð var fram trúnaðarmerkt tillaga sviðsstjóra velferðarsviðs.
Stjórn og stjórnendur Félagsbústaða hafa talið þörf á að hækka leiguverð umfram verðlag um 6,5% til að ná markmiðum um sjálfbæran rekstur. Í fundargerð borgarráðs er ekki upplýst af hverju einungis var lögð til hækkun upp á 1,5%.
Mánaðarleg hækkun upp á 2.737 krónur
Í bréfi sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, sem fylgir með fundarliðnum, segir að hækkunin sé nauðsynleg til að halda rekstri Félagsbústaða í jafnvægi til skamms tíma á meðan unnið er að frekari útfærslu á öðrum tillögum.
Fram kemur að hækkun leigu um 1,5% skili Félagsbústöðum 53,6 milljónum króna á ársgrundvelli. Hækkun leigu um 1,5% nemur að meðaltali 2.737 krónum á mánuði hjá hverjum leigjenda.
„Til mótvægis dragi Félagsbústaðir úr kaupum á íbúðum úr 82 íbúðum í 50 íbúðir sem er 1,6% stækkun á safninu, sem er sambærilegt við áætlaða íbúaþróun í borginni. Felur það í sér að fjárfestingaáætlun lækkar um 2.103 m.kr., þ.e. úr 5.951 m.kr. í 3.848 m.kr. til að draga tímabundið úr fjárþörf á meðan unnið er að breytingum á viðskiptalíkani félagsins.“
Ítrekað kallað eftir viðbrögðum velferðarráðs án árangurs
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Hildur Björnsdóttir og Kjartan Magnússon, segja í bókun að þau telji eðlilegra að fyrirliggjandi tillaga kæmi til samþykktar samhliða formlegri ákvörðun um að ráðist yrði í algjöra endurskipulagningu á rekstri Félagsbústaða.
Þau benda á að stjórn Félagsbústaða hafi ítrekað kallað eftir viðbrögðum velferðarráðs Reykjavíkurborgar vegna málsins, án árangurs.
„Vinnubrögð meirihlutans í málinu hafa verið verulega ámælisverð en lengi hefur legið fyrir að bregðast þurfi við ósjálfbærum rekstri Félagsbústaða.“