Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar á fyrstu þremur mánuðum ársins var neikvæð um 5,4 milljarða króna. Það er 2,1 milljarða króna lakari niðurstaða en fyrir ári síðan en 985 milljóna króna lakari niðurstaða en áætlað var.

Áhrif kennarasamninga 2,5 milljarðar

Í tilkynningu borgarinnar segir að jákvæð frávik hafi verið í staðgreiddu útsvari sem var 1.929 milljónir króna yfir áætlun. Neikvæð frávik var í gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar um sem nemur 2.315 milljónum króna yfir áætlun.

„Áhrif kjarasamninga sem staðfestir voru á fyrsta ársfjórðungi ársins á lífeyrisskuldbindinguna voru metin 2.500 milljónir króna umfram áætlun,“ segir í tilkynningunni.

„Áhrifin hafa verið gjaldfærð á tímabilið til samræmis. Rekstur sviða og stofnana var að mestu í jafnvægi á tímabilinu.“

Fram kemur að launakostnaður hafi hækkað 2.000 milljónir króna á milli ára en nýir kjarasamningar höfðu „nokkur áhrif“.

Rekstrarniðurstaða A-hlutans fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var neikvæð um 592 milljónir króna sem var um 2.181 milljóna króna lakari niðurstaða en á sama tímabili 2024.

Veltufé frá rekstri var jákvætt um 684 milljónir eða 1.376 milljónum króna ærra en áætlað var. Veltufé frá rekstri var 323 milljónum króna betra en á sama tíma árið 2024.