Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstað A-hluta borgarinnar verði jákvæð um 591 milljón króna árið 2024 en til samanburðar er áætlað að halli verði á rekstri A-hlutans upp á 4,8 milljarða króna í ár. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir árin 2024-2028.

„Hagræðingaraðgerðir hafa skilað betri árangri en áætlanir gerðu ráð fyrir á yfirstandandi ári,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

„Rekstrarniðurstaða A-hluta síðustu ár hefur litast af óstöðugleika í efnahagsumhverfinu og vanfjármögnun ríkisins á málaflokki fatlaðs fólks. Útkomuspá yfirstandandi árs gerir ráð fyrir 10,8 milljarða króna jákvæðum viðsnúningi frá árinu 2022 og að niðurstaðan verði halli sem nemur 4,8 milljörðum króna sem er rúmum milljarði betra en áætlun.

Árið 2024 er gert ráð fyrir tæplega 600 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu sem fer síðan batnandi út áætlunartímabilið til samræmis við markmið fjármálastefnu.“

Í tilkynningu sinni vísar borgin til hagræðingaraðgerða sem samþykktar voru í borgarráði haustið 2022 til að takast á við hallarekstur „og áhrif annarra erfiðra skilyrða í ytra umhverfi borgarinnar“. Ákveðið var að lækka fjárfestingaráform frá fyrri áætlunum, „settar fram samræmdar ráðningarreglur“ og lögð fram aðgerðaáætlun sem byggð er á fjármálastefnu borgarinnar.

Spá borgarinnar um rekstrarniðurstöðu A-hlutans, úr fjárhagsáætlun borgarinnar 2024-2028

Gera ráð fyrir 12 milljarða viðsnúningi milli ára

Fjárhagsáætlun ársins 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A- og B- hluta verði jákvæð um 7,6 milljarða króna samanborið við áætaðan 4,4 milljarða halla árið 2023.

„Á árunum 2025-2028 er gert ráð fyrir batnandi afkomu A- og B- hluta. Gert er ráð fyrir að í lok árs 2024 nemi eignir samtals 969 milljörðum og aukist um 58,4 milljarða á árinu. Þá er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 46,8% og hækki um 0,7%.“

Jafnframt gerir fjárhags- og fimm ára áætlun ráð fyrir að þriggja ára jafnvægisviðmið sveitarstjórnarlaga verði jákvætt allt áætlunartímabilið. Þá gerir áætlunin ráð fyrir að skuldaviðmið verði yfir viðmiði árin 2024 til 2026, en haldi frá og með árinu 2027.