Breiðfylking stærstu landssambanda og stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hafa vísað kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins (SA)‏ formlega til ríkissáttasemjara. Að þeirra sögn var komið krossgötum í viðræðunum.

„Felur það í sér að sáttasemjari tekur yfir stjórn viðræðna og stéttarfélögin færast skrefinu nær því að geta beitt þeim úrræðum sem vinnulöggjöfin heimilar að fullreyndum viðræðum,“ segja forsvarsmenn breiðfylkingarinnar í tilkynningu.

Halda því fram að SA hafi lækkað tilboð sitt

Á samningafundi í dag lögðu SA fram tilboð. Breiðfylkingin segir SA hafa boðið lægri launahækkanir en í áður framlögðu tilboði þeirra frá 17. janúar sl.

„Slík framganga í kjaraviðræðum er fáheyrð og kallar á að aðilar endurskoði grundvallarnálgun sína.“

Breiðfylkingin segir að eftir fjölda funda sé komið í ljós að SA fallist ekki á „hófsama nálgun“ sína. Breiðfylkingin kynnti útfærðar tillögur sínar, þar með talið kröfur varðandi launalið, fyrir SA þann 28. desember sl. Stéttarfélögin segjast hafa síðan þá lagt fram ný tilboð þar sem komið hafi verið til móts við kröfur SA.

„Breiðfylkingin hefur aldrei hvikað frá því markmiði að gera langtímakjarasamning á grunni hófsamra krónutöluhækkana, þar sem markmiðið er að ná hratt niður verðbólgu og vöxtum um leið og ríkið geri löngu tímabæra leiðréttingu á barna-, húsnæðis- og vaxtabótum.“

Undir yfirlýsinguna skrifa Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, Eiður Stefánsson, formaður samninganefndar Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.