Héðinn eignarhaldsfélag ehf. hefur keypt 93% hlut í véltæknifyrirtækinu Héðni hf. Á bakvið kaupin standa Guðmundur Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Héðins til áratuga, sem átti fyrir 24% hlut í Héðni, Halldór Lárusson núverandi stjórnarformaður Héðins, sem hefur setið í stjórn félagsins síðan 1994, og Eðvarð Ingi Björgvinsson, framkvæmdastjóri Héðins en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í sextán ár.
Seljendur eru RGI ehf. sem er í eigu þriggja lykilstarfsmanna Héðins, og þrír afkomendur annars stofnanda Héðins, Markúsar Ívarssonar.
Eftir kaupin er Héðinn að tveimur þriðju hluta enn í eigu afkomenda Markúsar. Guðmundur er af þriðju kynslóð afkomenda hans og Halldór af fjórðu kynslóð.
Héðinn var stofnaður árið 1922 og hefur alla tíð þjónað íslenskum sjávarútvegi og iðnaði. Höfuðstöðvar Héðins eru í um 8.000 fermetra húsnæði við Gjáhellu í Hafnarfirði og hjá félaginu starfa um 150 manns.
Veltan árið 2024 nam um 10 milljörðum króna og hagnaður eftir skatta nam um einum milljarði, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Rekstur félagsins skiptist í þrjú megin tekjusvið. Í fyrsta lagi skipaþjónustu en Héðinn hefur verið umboðsaðili Kongsberg Maritime og Bergen Diesel í ríflega 70 ár og þjónustar fiskiskip í Evrópu, Kanada og Bandaríkjunum.
Annað tekjusvið er fiskimjöl, en félagið hannar, smíðar og þjónustar búnað til framleiðslu fiskimjöls og lýsis, allt frá einstökum hlutum og upp í heilar verksmiðjur sem eru staðsettar við norðanvert Atlantshaf og í Bandaríkjunum. Héðinn hefur undanfarin ár komið að endurnýjum á verksmiðjum SVN, Brims, Skinneyjar-Þinganess og Ísfélagsins.
Þriðja tekjusviðið er iðnaðarþjónusta, en undir það falla stór verk eins og nýlega lokinni Hverahlíðalögn fyrir ON auk umfangsmikillar þjónustu við stóriðju og orkuver.
Héðinn hefur nýlega stofnað raftæknideild, og rekur auk þess fjögurra manna nýsköpunardeild en meginverkefni hennar hefur verið þróun á hugbúnaði fyrir fjarþjónustu sem gerir þjónustumönnum Héðins kleift að sinna þjónustu við skip á hafi úti og verksmiðjur í öðrum löndum með myndavéla- og þrívíddartækni.
Í gegnum dótturfélag sitt Héðinshurðir ehf. er félagið stærsti seljandi iðnaðar- og bílskúrshurða á Íslandi, auk þess að selja glugga og gluggakerfi frá H Fasader í Noregi.
Arion banki var ráðgjafi kaupenda, og sá um fjármögnun viðskiptanna.