Reitir fasteignafélag hafa tilkynnt um breytt skipurit og breytingar í framkvæmdastjórn sen fela m.a. í sér að þar fækkar um eina stöðu. Breytingar á skipuriti Reita hafa þegar tekið gildi.

Reitir fasteignafélag hafa tilkynnt um breytt skipurit og breytingar í framkvæmdastjórn sen fela m.a. í sér að þar fækkar um eina stöðu. Breytingar á skipuriti Reita hafa þegar tekið gildi.

„Í kjölfar stefnumótunarvinnu og nýrrar stefnu um kraftmikinn vöxt á næstu árum hefur Reitir fasteignafélag innleitt nýtt skipurit. Nýju skipuriti er ætlað að efla vöxt félagsins með skýrri verkaskiptingu og skilvirkum ákvörðunartökuferlum,“ segir í tilkynningu Reita til Kauphallarinnar.

Viðskiptaþróunarsvið Reita hefur verið sameinað þróunarsviði sem annast m.a. arðsemisgreiningu fasteignaþróunar - og nýsköpunartækifæra ásamt þróun og verkefnastýringu þeirra fram að framkvæmdarstigi. Jafnframt tilheyrir stefnumörkun á sviði sjálfbærni, innleiðing sjálfbærnimarkmiða og utanumhald sjálfbærnimælikvarða sviðinu „þó sú vinna sé unnin þvert á fyrirtækið“.

Nýtt skipurit Reita. Mynd tekin úr tilkynningu.

Breytt framkvæmdastjórn

Fram kemur að Friðjón Sigurðarsson, fráfarandi framkvæmdastjóri þróunarsviðs Reita, hafi óskað eftir lausn frá störfum. Hann hefur starfað hjá Reitum síðan 2013, og stýrt mörgum af stærstu þróunarverkefnum félagsins.

Reitir hafa ráðið Birgi Þór Birgisson sem framkvæmdastjóri þessa sameinaðs þróunarsviðs og mun hann hefja störf um miðjan ágúst. Birgir Þór hefur starfað sem yfirverkefnastjóri hjá HS Orku frá 2020 en starfaði áður m.a. hjá Jarðborunum og Mannviti. Birgir er með M.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð.

Þá kemur fram að Ragnheiður Margrét Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs og regluvörður félagsins, hafi óskað eftir lausn frá störfum. Ragnheiður hóf störf fyrir félagið í aðdraganda skráningar þess í kauphöll og hefur hún verið lykilstarfsmaður í vaxtarferli Reita undanfarinn áratug, að því er segir í tilkynningu Reita.

Sigurlaug Helga Pétursdóttir, lögmaður, sem starfað hefur hjá Reitum síðan 2015, tekur við stöðu yfirlögfræðings og forstöðumanns lögfræðisviðs ásamt því að gegna hlutverki regluvarðar félagsins. Skipun hennar í hlutverk regluvarðar hefur verið tilkynnt til Fjármálaeftirlitsins og tók gildi frá og með 2.júlí 2024.

Ingveldur Ásta Björnsdóttir, sem starfað hefur hjá Reitum sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, tekur við framkvæmdastjórn nýs sviðs, Viðskiptavina.

„Markmið sviðsins er að bæta upplifun viðskiptavina með því veita viðskiptavinum greiðari aðgang að samfelldri þjónustu. Undir sviði viðskiptavina heyrir umsjón með útleigu og ný þjónustueining sem ætlað er að og breikka þjónustu við núverandi og nýja viðskipavini í takt við þarfir þeirra hverju sinni.“

Kristófer Þór Pálsson er nýr framkvæmdarstjóri nýs sviðs, Fjárfestingar og Greiningar. Hann hefur verið framkvæmdarstjóri viðskiptasviðs hjá Reitum síðan 2016.

„Markmið sviðsins er að tryggja áframhaldandi fjárfestingu í arðbærum eignum, sem er einn af hornsteinum vaxtastefnu félagsins. Sviðið mun einnig afla gagna og framkvæma ýmsar greiningar til að undirbyggja ákvarðanatöku þvert á félagið og til að meta árangur stefnumótandi aðgerða.