Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur tilkynnt um skipulagsbreytingar á rekstri sínum sem félagið segir að eigi að gefa hverri rekstrareiningu meira vægi og sjálfstæði. „Vegna aukinnar áherslu á skilvirkni í rekstri mun stöðugildum samstæðunnar fækka í dag,“ segir í tilkynningu Sýnar.
„Áætlað er að breytingar á skipulagi, ásamt öðrum rekstraraðgerðum, muni skila sér í bættri afkomu Sýnar sem nemur um 650 milljónum króna á ársgrundvelli. Jákvæðra áhrifa mun fyrst gæta í afkomu fyrsta ársfjórðungs 2023.“
Kostnaður vegna starfsloka verður gjaldfærður að fullu á yfirstandandi fjórðungi og nemur um 150 milljónum króna.
Aukið sjálfstæði rekstrareininga
Starfsemi móðurfélagsins Sýnar verður skipt í tvær kjarnaeiningar: Vodafone - Fjarskipti og Fjölmiðlar. Þá verða stoðsvið fjögur:
- Nýsköpun og rekstur
- fjármál og stefnumótun
- lögfræði og
- mannauður.
Aðrar rekstrareiningar eru dótturfélagið Endor og sérstök rekstrareining utan um innviði, Sýn – Innviðir, sem mun halda utan um allar þjónustur, samninga og innviðaeignir samstæðunnar.
Endor verður gefið aukið vægi í starfseminni og mun taka yfir kerfisþjónustu Sýnar. Gerður verður þjónustusamningur á milli félaganna sem mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu Endor.
„Skýja- og rekstrarlausnir til innlendra viðskiptavina hafa verið vaxandi í rekstri Endor og með þessu getur félagið sótt enn frekar á þann markað.“
Hulda og Alda í framkvæmdastjórn Sýnar
Fram kemur að félagið hafi ráðið nýja framkvæmdastjóra til að „undirbúa frekari sókn“. Auk þess verði ráðið í nýtt starf framkvæmdastjóra Vodafone - Fjarskipta „þar sem áherslan verður m.a. á markaðsmál og framúrskarandi þjónustuupplifun“.
Hulda Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunar og rekstrar, með áherslu á vöruþróun, rekstur og stafrænar umbreytingar. Hulda kemur frá Össuri þar sem hún hefur starfað síðastliðin 11 ár, síðast sem forstöðumaður á rekstrarasviði. Þar var áhersla hennar m.a. á gæðamál, innleiðingu regluverks lækningatækja, öryggismál og sjálfbærni þvert yfir fyrirtækið á alþjóðavísu.
Alda Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðs „með sérstaka áherslu á fyrirtækjamenningu til vaxtar“ en hún hefur gegnt stöðu mannauðsstjóra Sýnar frá því í mars. Þar áður starfaði hún sem stjórnendaþjálfari í eigin fyrirtæki Vendum í 11 ár.
Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar:
„Við höfum náð góðum tökum á rekstrinum undanfarin misseri og höfum einblínt á að einfalda ferla, kerfi og skipulag með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini. Við viljum lækka rekstrarkostnað og þessar aðgerðir eru til þess fallnar að bæta arðsemi félagsins. Við erum nú vel undir það búin að sækja til vaxtar.
Kjarnaeiningar félagsins eru nú tvær: Vodafone - Fjarskipti og Fjölmiðlar, auk rekstrareininganna tveggja Endor og Sýn - Innviða. Við höfum áður lýst því yfir að við viljum kynna Sýn betur fyrir markaðnum og sýnum það nú í verki með breyttu stjórnskipulagi þar sem hverri rekstrareiningu er gefið meira vægi og sjálfstæði. Við munum halda áfram á þeirri vegferð með aukinni upplýsingagjöf fyrir hverja einingu.
Það fylgja blendnar tilfinningar deginum í dag. Á sama tíma og við fögnum því sérstaklega að fá tvær öflugar konur í framkvæmdastjórn félagsins, þá verður þetta erfiður dagur þar sem við kveðjum kært samstarfsfólk. Ég efa þó ekki að það muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.
Þær breytingar sem við kynnum núna byggja á grunni undanfarinna ára, þar sem kerfi hafa verið einfölduð og sjálfvirknivæðing aukist. Tækniþróun er ör í okkar geira og verður áfram. Með þessum breytingum á skipulagi verðum við í enn sterkari stöðu til að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu, styðja starfsfólkið okkar áfram í að ná árangri og skila hluthöfum ávinningi.”