Fjárfestingafélagið Roark Capital hefur fest kaup á bandarísku skyndibitakeðjunni Dave´s Hot Chicken fyrir um einn milljarð Bandaríkjadala.

Það merkilega við keðjuna er að hún var stofnuð fyrir einungis átta árum síðan er þrír æskuvinir sameinuðu sparnað sinn, alls 900 dali, og hófu að selja sterkan djúpsteiktan kjúkling í Los Angeles.

„Ég vil fá það sem þú ert að reykja, gaur,“ er svar Arman Oganesyan við spurningu blaðamanns Wall Street Journal um það hver viðbrögð hans hefðu verið á sínum tíma ef honum hefði verið tjáð hve verðmætt fyrirtækið ætti eftir að vera eftir innan við áratug.

Á aðeins átta árum hefur Dave‘s Hot Chicken vaxið á ógnarhraða og eru staðirnir í dag alls 315 í Bandaríkjunum og víða um heim. Þá eru uppi áform um 150 nýjar staðsetningar í Bandaríkjunum, Evrópu og Miðausturlöndum.

Tekjur fyrirtækisins þrefölduðust á síðustu tveimur árum og fóru yfir 600 milljónir dollara í fyrra. Á þessu ári er gert ráð fyrir að tekjurnar tvöfaldist á ný. Þá hafa þekkt nöfn á borð við Drake, Samuel L. Jackson, Maria Shriver, Michael Strathan og Tom Werner