Brimgarðar ehf., fjárfestingarfélag í eigu Langasjár ehf., hefur styrkt stöðu sína sem stærsti hluthafi í Eik fasteignafélagi en félagið keypti fyrir helgi hlutabréf fyrir samtals 199,5 milljónir króna.
Brimgarðar keyptu 15 milljónir hluta á genginu 13,30 krónur á hlut. Gengi Eikar hefur hækkað um rúm 3% í viðskiptum dagsins og stendur í 13,95 krónum þegar þetta er skrifað.
Eftir viðskiptin stendur sameiginlegt eignarhald Langasjár og Brimgarða upp í 33,55% í Eik, miðað við lista yfir stærstu hluthafa Eikar.
Langisjór er því nálægt því að eignast 34% hlut en við það þarf fjárfestingafélagið að samþykkja allar stærri ákvarðanir Eikar svo þær fái brautargengi.
Fyrir viðskiptin áttu Brimgarðar ehf. samtals 684.961.880 hluti, sem nam 20,01% hlut í Eik fasteignafélagi.
Eftir viðskiptin er hlutfallið komið upp í 699.961.880 hluti, eða um 20,46% af heildarhlutafé félagsins. Þar sem Langisjór ehf. er móðurfélag Brimgarða, fer Langisjór með sameiginlegt eignarhald beggja félaga og þar með atkvæðisrétt yfir alls 1.148.209.070 hlutum, sem samsvarar 33,55% eignarhlut og atkvæðavægi í Eik fasteignafélagi hf.
Langisjór hefur lýst yfir áhuga á að ná meirihlutastöðu í Eik, en jafnframt halda félaginu skráðu á markaði.
Langisjór gerði yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins í lok september í fyrra.
Tilboðsverð Langasjávar hljómaði upp á 11 krónur fyrir hvern hlut en þegar tilboðið var lagt fram var hæsta verð sem einhver hafði greitt fyrir hlutabréf í Eik á síðustu sex mánuðum 11,2 fyrir hvern hlut.
Gengi Eikar hækkaði töluvert í kjölfarið og tóku því örfáir hluthafar boðinu.
Aðeins barst samþykki fyrir alls 247.190 hlutum í Eik. Langisjór og tengd félög enduðu með 1.106.281.964 hluti í Eik sem samsvaraði 32,31% af hlutafé félagsins.
Í kauphallartilkynningu félagsins eftir yfirtökutilboðið sagði Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Langasjávar, að félagið myndi halda áfram að kaupa hluti í Eik.
„Nú er Langasjó frjálst að eignast meirihluta í félaginu án þess að endurtaka það ferli. Hvenær og á hvern hátt Langisjór eykur við hlut sinn í Eik mun fara eftir markaðsaðstæðum og öðrum fjárfestingartækifærum sem bjóðast,” sagði Gunnar Þór í september.
Langisjór er í eigu systkinanna Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gíslabarna sem oft eru kennd við heildverslunina Mata.
Markmið Langasjávar með yfirtökunni var meðal annars að breyta Eik í arðgreiðslufélag en stjórn Eikar samþykkti í fyrra að greiða árlega út arð sem nemur a.m.k. 75% af handbæru fé frá rekstri ársins að frádreginni þeirri fjárhæð sem nýtt verður í kaup á eigin bréfum fram að boðun næsta aðalfundar.
Félagið hefur einnig lagt til að Eik auki skuldsetningu til að auka arðsemi eigin fjár félagsins án þess þó að stefna fjárhagslegum stöðugleika þess í hættu.