Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 150 þúsund í nýliðnum nóvember samkvæmt mælingum Ferðamálastofu.

Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í nóvember metárið 2018.

Ferðamálastofa segir að tæplega helmingur brottfara hafi komið til vegna Breta og Bandaríkjamanna. Brottfarir Breta voru um 36 þúsund talsins, eða tæplega fjórðungur. Voru þá Bandaríkjamenn í öðru sæti með 31 þúsund brottfarir, eða um fimmtung af heildinni.

Brottfarir Pólverja voru í þriðja sæti eða 5,9% af heild og Ítalir í því fjórða með 3,4%. Þar á eftir komu Þjóðverjar, Spánverjar, Frakkar, Kínverjar, Kanadamenn og Danir.

Frá áramótum hefur tæplega 2,1 milljón erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 31,9% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra. Fjöldinn það sem af er ári er um 95,8% af brottförum á sama tímabili, janúar til nóvember, metárið 2018.

Brottfarir Íslendinga voru einnig 8,8% fleiri en á sama tímabili í fyrra en 43 þúsund Íslendingar fóru í gegnum Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði. Frá áramótum hafa brottfarir Íslendinga mælst um 555 þúsund eða 89,8% af því sem þær mældust á sama tímabili árið 2018 þegar mest var.