Breska tískufyrirtækið Burberry hefur ákveðið að skipta um forstjóra í ljósi mikils samdráttar í sölu á vörumerkinu. Joshua Schulman, fyrrum forstjóri Michael Kors, mun taka við af Jonathan Akeryod.
Forstjóraskiptin koma á samhliða töluverðum sölusamdrætti en fyrirtækið hefur orðið fyrir barðinu á minni eftirspurn eftir lúxusvörum, sérstaklega í Kína.
Burberry segist nú skoða uppsagnir og ef núverandi þróun heldur áfram mun hagnaður fyrirtækisins enda undir væntingum. Fyrirtækið segir að smásölutekjur hafi lækkað um 21% á síðustu þremur mánuðum fram að lokum júní.
Félagið hefur þá stöðvað arðgreiðslur til hluthafa á yfirstandandi fjárhagsári þar sem það leitast við að spara. Fyrirtækið mun þá þurfa að draga úr kostnaði og grípa til annarra afgerandi aðgerða til að koma jafnvægi á reksturinn.
Sala Burberry hefur minnkað um 23% í Asíu miðað við sama tíma í fyrra og dróst sala í Ameríku einnig saman um 23%. Í maí á þessu ári hafði fyrirtækið tilkynnt um 40% lækkun á hagnaði á þessu ári.