Michael Burry, stofnandi Scion Asset Management, hefur á ný gert róttækar breytingar á fjárfestingum sínum. Burry er hvað þekktastur fyrir að hafa grætt stórar upphæðir á falli fasteignalánamarkaðarins árið 2008.
Samkvæmt nýjustu skýrslu til bandarískra verðbréfaeftirlitsins (13F- filing) hefur hann selt nánast öll hlutabréf í eignasafni sínu, með einni undantekningu; snyrtivörurisann Estée Lauder, sem hann jafnframt tvöfaldaði hlut sinn í.
Samhliða því tók hann skýra stöðu gegn stærstu tæknifyrirtækjunum í Kína og bandaríska örgjörvaframleiðandanum Nvidia með því að kaupa valréttarsamninga með sölurétt (e. put option).
Slíkir samningar gefa honum rétt til að selja hlutabréfin á fyrir fram ákveðnu verði í framtíðinni en samningurinn verður verðmætari eftir því sem markaðsverð hlutabréfanna lækkar.
Samkvæmt 13F skýrslu Burry er hann að veðja gegn, Nvidia, Alibaba, JD.com, Baidu og PDD Holdings.
Burry seldi öll hlutabréf sín í eftirfarandi fyrirtækjum á fyrsta ársfjórðungi og tók þess í stað skýra afstöðu gegn þeim.
Að undanskildu Nvidia hækkuðu hlutabréf kínversku fyrirtækjanna töluvert á fjórðungnum í kjölfar þess að gervigreindafyrirtækið DeepSeek kynnti spjallmenni sitt.
Burry hafði áður byggt upp stórar stöður í kínverskum netrisum en byrjaði að draga úr kaupum þegar leið á árið 2024.
Með hliðsjón af hugsanlegum tollabreytingum undir stjórn Trump virðist Burry hafa séð fyrir aukinni óvissu í bæði kínverskum hlutabréfum og bandarískum hátæknifyrirtækjum.
Samkvæmt Bloomberg hefur verið söluþrýstingur á bréf Nvidia, þar sem sumir fjárfestar, Burry þeirra á meðal, telja að verðlagning félagsins standist ekki raunverulega afkomu eða langtímaforsendur.
Bloomberg telur það jafnframt áhugavert að samhliða sölunni eykur Burry við hlut sinn í Estée Lauder.
Snyrtivörurisinn hefur átt í erfiðleikum síðustu misseri en Burry virðist telja að hér sé tækifæri til langs tíma, þar sem endurreisn gæti fært félagið aftur í vöxt og hærri framlegð.
Samkvæmt Bloomberg eru breytingar Michael Burry á eignasafni sínu í samræmi við fjárfestingastefnu hans þar sem hann tekur skýra og afgerandi afstöðu þegar hann sér vanmat eða áhættu á markaði.
Með því að selja öll hlutabréf nema eitt og veðja gegn nokkrum af verðmætustu fyrirtækjum heims sé hann að synda á móti straumnum enn á ný.
Hvort sú stefna reynist á ný gríðarlega arðbærm eins og í „The Big Short“ á eftir að koma í ljós. En ef eitthvað er víst, þá fylgjast fjárfestar náið með næstu skrefum Burry.