Hæstiréttur hefur sýknuð Samkeppniseftirlitið af öllum kröfum Innness vegna búvörulögum sem Alþingi samþykkti í fyrra. Hæstiréttur telur að lögin hefðu rúmast innan ramma stjórnarskrárinnar og sneri því við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um gildi búvörulaganna.
Allir sjö dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu og það var tekið fyrir án viðkomu í Landsrétti, að því er segir í frétt Vísis um málið en dómurinn hefur ekki verið birtur opinberlega.
Breytt löggjöf gerði það að verkum að kjötafurðastöðvar væru undanþegnar samkeppnislögum. Í kjölfar gildistöku laganna keypti Kaupfélag Skagfirðinga Kjarnafæði Norðlenska.
Ríkisstjórnin tilkynnti í byrjun febrúar að til stæði að vinda ofan af breytingum á búvörulögum. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra lagði í sama mánuði fram frumvarp um breytingar á búvörulögunum þess efnis að þau færu aftur í fyrra horf.