Kínverski bílaframleiðandinn BYD kynnti tvo nýja hybrid-bíla til leiks í gær sem eru báðir með 2.100 kílómetra drægni. Það væri því hægt að keyra á þeim alla leið frá New York til Miami án þess að þurfa að stoppa til að hlaða.

Bílarnir kallast Qin L DM-i og Seal 06 DM-i og kosta í kringum 13 til 14 þúsund dali en verðmiðinn er talinn frekar viðráðanlegur miðað við aðra fólksbíla í Kína.

Hlutabréf BYD hækkuðu um 5,3% í dag í Hong Kong og hæukkuðu meira en önnur félög innan Hang Seng-vísitölunnar. BYD hækkaði þá um 8,35% í Shenzhen en það er mesta hækkun á einum degi á þeim markaði síðan í september 2021.

Bílaframleiðandinn, sem nýtur meðal annars stuðnings frá Warren Buffett, hefur verið á miklu flugi undanfarin misseri. BYD er nú stærsti rafbílaframleiðandi í heimi miðað við sölutölur og hefur kynnt bæði sportbíla og pallbíla.