Erlend netverslun hefur aukist um 22,68% það sem af er ári en frá janúar til apríl nam verslunin 9,9 milljörðum króna miðað við 8,1 milljarð á sama tímabili árið 2024. Þetta kemur fram í greiningu RSV.
Þar segir hins vegar að örlítill samdráttur hafi verið í erlendri netverslun milli mars og apríl, eða 2,66%, en umfang erlendrar netverslunar í apríl var þó 4,61% meira en í apríl 2024.
„Þegar horft er til einstakra flokka má sjá að fataverslun hefur aukist mest á tímabilinu eða um 630 milljónir (18,0%), önnur verslun um 436 milljónir (22,3%) og byggingavöruverslun um 377 milljónir (50,3%) á fyrsta fjórðungi ársins,“ segir í greiningu RSV.
Laun starfsmanna í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum hækkuðu um 5,03% milli 2023 og 2024. Hækkunin var mest hjá ósérhæfðu starfsfólki, eða 8,55%, en lægst hjá sérfræðingum, eða 1,09% milli ára.
„Skrifstofufólk í greininni hækkaði um 7,57%, stjórnendur um 4,59%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk um 4,48%, iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk um 4,45% og tæknar og sérmenntað starfsfólk hækkaði um 3,83% milli ára.“