Icelandair og Air India undirrituðu samstarfssamning fyrr í vikunni um sammerkt flug en með samningnum opnast tengingar á milli Íslands og Indlands um sameiginlega áfangastaði félaganna í Evrópu.
Þessi tiltekni samningur Air India við evrópskt flug er ekki einsdæmi en töluverð bylting er að eiga sér stað um þessar mundir í evrópskum flugiðnaði.
Air India hefur nýlega undirritað samstarfssamninga við airBaltic, Bulgaria Air, Cyprus Airways og Uzbekistan Airways. Á sama tíma hefur indverska flugfélagið IndiGo sameinað krafta sína við Delta, Air France-KLM og Virgin Atlantic.
Þessir samningar gera nú Indverjum kleift að ferðast til nýrra borga í Evrópu og Mið-Asíu eins og Ríga, Sófíu, Larnaka og Samarkand á einum farmiða. Á sama tíma geta Indverjar flogið til Norður-Ameríku með svipuðum hætti til að ferðast eða stunda viðskipti.
Einkavæðing flugvalla
Samhliða þessum samstarfssamningum hafa indverskir flugvellir gengið í gegnum stórfellt einkavæðingarferli. Flugvellir í Delí, Múmbai, Hyderbad og Bengaluru hafa verið að umbreytast í nútímaflugvelli með hágæða þjónustu.
Þessi bylgja einkavæðingar hefur staðið yfir síðan 2020 og eru þessir flugvellir, ásamt sex öðrum, nú reknir af indversku fjárfestasamstæðunni Adani Group.
Ákvörðun indversku ríkisstjórnarinnar um að einkavæða flugvellina byggist á áætlun um að nútímavæða innviði og takast á við sívaxandi flugumferð í landinu. Þetta felur meðal annars í sér leigu flugvalla til verktaka og sölu hluta frá indverskum flugvallaryfirvöldum.
Ferlið hófst að vísu fljótlega eftir áramót og voru fyrstu flugvellirnir einkavæddir á árunum 2006 og 2008.
Indverjar stefna nú að því að endurskilgreina flugsamgöngur til og frá landinu en stefna þeirra var meðal annars kynnt á 81. aðalfundi IATA sem lauk í Nýju Delí í gær. Indverjar vona nú að fjölgun áfangastaða og einkavæðing flugvalla muni gera landið að miðpunkti í alþjóðlegu flugkerfi.