Rafrænar evrur (EURe) útgefnar af íslenska fjártæknifyrirtækinu Monerium á sex ólíkum bálkakeðjum hafa skipt um hendur fyrir 4,7 milljarða evra, eða sem nemur um 677 milljörðum króna á gengi dagsins í dag, í yfir 2,7 milljónum færslna frá því að þær voru formlega kynntar til leiks sumarið 2022.

Alls eru nú um 24 milljónir rafevra, eða sem nemur um 3,5 milljörðum króna, útistandandi í eigu um 31 þúsund notenda. Að sögn Gísla Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Monerium, tvöfaldaðist útgáfan í fyrra. Þá hafi um 80-90% af veltunni átt sér stað á síðustu tólf mánuðum. „Sé horft til síðustu þriggja mánaða hefur fyrirtækið, sé miðað við heildarveltu viðskipta, verið að vaxa um 20% milli mánaða. Ef þessi þróun heldur áfram mun veltan tífaldast á tólf mánaða tímabili.“

Sóttu hátt í 800 milljónir

Í lok síðasta árs lauk Monerium við 5,5 milljóna dala hlutafjáraukningu, eða sem nemur um 762 milljónum króna miðað við miðgengi Bandaríkjadals gagnvart íslensku krónunni í desember sl. Gnosis VC, félag á vegum fjártæknifyrirtækisins Gnosis Pay, fjárfesti fyrir 3 milljónir dala í svokölluðum „Early Growth“ bréfum og við það breyttu aðrir fjárfestar breytanlegum bréfum að andvirði 2,5 milljónir dala í hlutabréf í sama flokki. Gísli segir að fjármagnið verði notað til styðja við frekari vöxt, meðal annars með ráðningu á nýju starfsfólki.

Fleiri fjárfestar hafi lýst áhuga að ganga til liðs við fyrirtækið og unnið sé að því að sækja aukið hlutafé frá íslenskum fjárfestum.

„Við höfum verið að einblína mun meira á erlenda markaði heldur en þann íslenska og þar af leiðandi er fyrirtækið ekki mjög þekkt hér á Íslandi. Við fengum inn fjármagn frá íslenskum fjárfestum á fyrstu stigum og Crowberry Capital fjárfesti í félaginu um það leyti sem það fékk starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands árið 2019, sem gildir um alla Evrópu. Síðan þá höfum við sótt fjármagn erlendis frá. Við höfum heimild til að sækja meira fé og höfum því verið að þreifa á íslenskum fjárfestum.“

Gísli segir íslenska fjárfesta hafa sýnt fyrirtækinu mikinn áhuga og þegar hafi borist áskriftarloforð fyrir meginþorra hlutafjáraukningarinnar. „Við erum að styrkja fjárhagsstöðuna til að vera vel í stakk í búin til að grípa stór tækifæri sem hafa og eru að myndast á markaði fyrir stöðugleikamyntir en stöðugleikamyntir eru hefðbundnir gjaldmiðlar sem nýta sér bálkakeðjur í stað hefðbundinna greiðslukerfa,“ segir hann.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.