Coca-Cola hefur innkallað drykki sína í nokkrum Evrópulöndum vegna of hás magns af klórati. Efnið verður til þegar sótthreinsandi efni sem innihalda klór eru notuð í matvælaframleiðslu.
Fyrirtækið segir í yfirlýsingu að innköllunin hafi átt sér stað í Belgíu, Lúxemborg og Hollandi. Vörumerkin sem um ræðir eru meðal annars Coke, Fanta, Sprite, Tropico og Minute Maid.
Coca-Cola segist ekki hafa fengið neinar kvartanir frá Bretlandi en nokkrar sendingar enduðu þar. Fyrirtækið hafi hins vegar þegar varað stjórnvöld við og muni halda áfram að vinna með þeim í tengslum við málið.
Of mikið klórat getur valdið heilsufarsvandamálum, þar á meðal skjaldkirtilssjúkdómum, sérstaklega hjá börnum og ungmennum.
„Við þurfum að velta því fyrir okkur hvort við viljum melta efni í gosdrykkjum sem eru notuð í framleiðslu flugelda og sótthreinsiefna, sama hversu lítið magnið er,“ segir Caron Grazette, næringafræðingur hjá NHS, í samtali við BBC.