Tekjur Controlant jukust um 39% á milli ára og fóru úr 133 milljónum dala árið 2022 í 185 milljónir dala árið 2023, samkvæmt nýsamþykktum ársreikningi félagsins.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir í fyrra nam 105 milljónum dala og tap var 10.5 milljónir dala sem samsvarar um 1,5 milljörðum króna á gengi dagsins.
Aðalfundur Controlant fór fram í dag þar sem Guðmundur Árnason, fjármálastjóri, kynnti ársreikning fyrir árið 2023 og áætlanir um fjármögnun félagsins.
Samkvæmt tilkynningu frá félaginu jukust tekjur af kjarnastarfsemi (tekjur ótengdar Covid-19) um 79% á milli ára, úr 9 milljónum dala árið 2022 í 16 milljónir dala árið 2023.
„Sýn okkar er að útrýma sóun þvert á aðfangakeðju lyfja. Við tókum stefnumótandi skref á árinu í átt að sýn okkar og áttu hluthafar, fjárfestar, birgjar, samstarfsaðilar, og starfsfólk lykilþátt í árangri okkar. Lyfjageiranum fleytir fram og sífellt fleiri ný lyf eru kynnt á markað auk þess sem vægi nýrra tegunda flókinna og viðkvæmra lyfja á borð við líftæknilyf fer vaxandi. Örugg og sjálfbær dreifing slíkra lyfja byggir á skilvirkri, áreiðanlegri aðfangakeðju þar sem rauntímainnsýn frá framleiðslu til neytenda er lykilforsenda. Stöðug nýsköpun, samheldið teymi starfsfólks, og fyrsta flokks vöruframboð Controlant mun gera okkur kleift að umbylta aðfangakeðju lyfja,“ segir Gísli Herjólfsson forstjóri og einn stofnenda.
Controlant tryggði sér samtals 80 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun á síðasta ári til þess að styðja við vöruþróun og markaðssókn.
„Á sama tíma varð samdráttur í eftirspurn eftir Covid-19 bóluefni til þess að félagið greip til aðgerða til þess að auka hagkvæmni í rekstri sínum. Aðgerðirnar fólu m. a. í sér fækkun starfsfólks og almennar sparnaðaraðgerðir í rekstri,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Á fundinum veittu hluthafar stjórn heimild til hlutafjáraukningar „til að styðja við við stefnu og framtíðaráform Controlant.”
Allir núverandi stjórnarmenn voru endurkjörnir ásamt varamönnum. Eftir fundinn sitja eftirfarandi í stjórn félagsins: Søren Skou, stjórnarformaður, Ásthildur Otharsdóttir, varastjórnarformaður, Kristín Friðgeirsdóttir, Trausti Þórmundsson og Steve Van Kuiken ásamt varastjórnarmönnunum Magnúsi Magnússyni og Svanhvíti Gunnarsdóttur.
„Þegar heimsfaraldur skall á, tókst Controlant á við þá umfangsmiklu áskorun að tryggja örugga dreifingu á yfir 6 milljörðum Covid-19 bóluefnaskammta, og tryggði á sama tíma rauntímavöktun á þessari viðkvæmu lyfjavöru. Nú er hafinn nýr kafli á vegferð félagsins og hefur Controlant þegar sannað leiðandi stöðu sína á heimsvísu í rauntímavöktun fyrir aðfangakeðju lyfja. Ég þakka Ásthildi Otharsdóttur, sem hefur sinnt hlutverki stjórnarformanns fram til þessa árs fyrir forystu og ómetanlegt framlag til uppbyggingar Controlant, sem tryggir þá sterku stöðu sem félagið nýtur í dag. Ég hlakka til að vinna áfram með Ásthildi í nýju hlutverki hennar sem varastjórnarformaður, ásamt stjórninni allri, stjórnendum og starfsfólki. Með skýra sýn um að útrýma sóun og að tryggja öryggi sjúklinga í hvarvetna að leiðarljósi og með stuðningi hluthafa og fjárfesta, munum við halda áfram að auka hagsæld allra hagsmunaðila,“ segir Søren Skou, stjórnarformaður Controlant