Costco á Íslandi stefnir á að greiða út tæplega 4,5 milljarða króna, annars vegar með 1,8 milljarða króna arðgreiðslu og 2,7 milljarða hlutafjárlækkun. Í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi Costco er útgreiðslan sögð endurspegla sterka fjárhagslega afkomu félagsins í gegnum árin.

Um er að ræða fyrstu arðgreiðslu Costco Wholesale Iceland ehf. Félagið opnaði verslun í Kauptúni þann 23. maí 2017.

EBIT-hagnaður 36 milljónir í fyrra

Sala Costco á Íslandi jókst um 9% milli ára og nam tæplega 24,8 milljörðum króna á síðasta reikningsári sem lauk 31. ágúst 2024.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) jókst úr 276 milljónum í 335 milljónir milli ára. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 36 milljónum króna á síðasta reikningsári, samanborið við 4,7 milljónir árið áður.

Stjórn félagsins bendir á að framlegð á rekstrarárinu hafi verið 12,6%, samanborið við 12,9% árið áður, sem hún rekur til þess að félagið hélt áfram að viðhalda verðlagningu sinni í ljósi verðbólguþrýstings og minni framlegðar í öllum vöruflokkum. Aukin velta hafi vegið upp á móti minna framlegðarhlutfalli.

„Síðastliðið ár hefur Costco glímt við ýmsar áskoranir vegna verðbólgu á hrávörum, orku, vinnuafli og flutningum. Starfsmenn í innkaupum og rekstri gerðu sitt allra besta til að draga úr neikvæðum áhrifum verðbólgu á meðlimi okkar og starfsemi,“ segir í skýrslu stjórnar sem var undirrituð 14. maí sl.

„Til að bregðast við þessum kostnaðarhækkunum héldum við áfram að bæta hagkvæmni í rekstri með stöðugum endurbótum á ferlum og kerfum, fjárfestum í innviðum og unnum með birgjum okkar til að lágmarka áhrif kostnaðarhækkana á starfsemi okkar og halda áfram að bjóða góð kjör.“

Costco á Íslandi hagnaðist um 605 milljónir króna eftir skatta á síðasta rekstrarári, samanborið við 538 milljónir árið áður. Það skýrist einkum af því að hreinar fjármunatekjur félagsins námu 725 milljónum króna á reikningsárinu 2024, samanborið við 654 milljónir á fyrra ári.

Sjö milljarðar í handbært fé

Eignir Costco á Íslandi í lok ágúst 2024 námu 14,6 milljörðum króna en þar af var fasteign félagsins í Kauptúni metin á 3,7 milljarða króna. Handbært fé Costco á Íslandi nam yfir 7 milljörðum króna í lok síðasta rekstrarárs.

Eigið fé félagsins var 10,7 milljarðar og skuldir 3,6 milljarðar króna en þar af voru skuldir við tengda aðila um einn milljarður króna.

Costco Wholesale Iceland ehf. er endanlega í eigu Costco Wholesale Corporation sem er með höfuðstöðvar í Washington ríki í Bandaríkjunum.

Lykiltölur / Costco Wholesale Iceland ehf.

1.9.23 -31.8.24 1.9.22 -31.8.23
Sala 24.760 22.716
EBITDA 335 276
EBIT 36 5
Hreinar fjármagnstekjur 725 654
Hagnaður e. skatta 605 538
Eignir 14.556 13.352
Handbært fé 7.084 6.066
Eigið fé 10.772 10.113
Starfsmenn í fullu starfi 85 93
Starfsmenn í hlutastarfi 99 103
Framlegðarhlutfall 12,9% 12,6%
Kostnaðarhlutfall 12,8% 12,5%
- fjárhæðir í milljónum króna og fjöldi starfsmanna í lok árs