Expectus hefur gengið frá kaupum á viðskiptagreindarhluta Cubus. Bæði félög hafa unnið með lausnir á sviði viðskiptagreindar, áætlanagerðar, greininga og skýrslugerðar undanfarin ár.
Með kaupunum er gert ráð fyrir að þrír starfsmenn Cubus á þessu sviði bætist við hóp Expectus. Einnig fylgja kaupunum hugbúnaðarlausnir sem Cubus hefur þróað eða verið endurseljandi að á Íslandi.
„Það er ánægjulegt að fá Andra Pál og félaga til liðs við okkur. Það styrkir teymið okkar að fá reynslumikla sérfræðinga á þessu sviði sem hafa þjónustað fjölbreyttar greinar atvinnulífsins og víkka um leið vöruframboð okkar,“ segir Reynir Ingi Árnason, framkvæmdastjóri Expectus.
Expectus er ráðgjafarfyrirtæki sem styður við íslensk fyrirtæki og stofnanir sem vilja ná auknum árangri í rekstri með gagnadrifnum ákvörðunum.
„Fyrir okkar hóp er frábært að koma inn í stærra fyrirtæki á þessu sviði eins og Expectus. Með því sjáum við fram á að geta enn betur þjónustað góðan hóp viðskiptavina enda er Expectus með um 20 einstaklinga sem sinna viðskiptagreind og tengdum lausnum,“ segir Andri Páll Heiðberg, sem leitt hefur hópinn innan Cubus.