Bandaríkjadalur hefur veikst skarpt í dag gagnvart íslensku krónunni. Dalurinn hefur ekki verið veikari gagnvart krónunni allt þetta ár.
Leita þarf aftur til febrúarmánaðar 2022 til sjá dalinn svo veikann. Miðgengi dals á móti krónu er nú 125,73.
Evrópski seðlabankinn lækkaði vexti í hádeginu en sagði að vaxtalækkunarhrina bankans væri nú komin á endastöð. Við það skaust evru/dals krossinn úr 1,144 í 1,149.
Gengisvísitala dalsinsm sem mælir gengi hans gagnvart körfu helstu gjaldmiðla, hefur lækkað um 9% frá ársbyrjun.
Á mánudaginn í síðustu viku hélt Christine Lagarde, bankastjóri Seðlabanka Evrópu ræðu í Hertie-háskólanum í Berlín.
Þar sagðu hún að breytt landslag í heimsmálum gæfi evrópskum stefnumótendum tækifæri til að efla stöðu evrunnar.
„Margþjóðlegt samstarf er að víkja fyrir núllsummuhugsun og tvíhliða valdaleikjum. Það ríkir jafnvel óvissa um hornstein peningakerfisins, hið ráðandi afl sem er Bandaríkjadalurinn.“
Þetta gæti, að hennar mati, „opnað dyrnar fyrir að evran geti gegnt stærra hlutverki á alþjóðavísu.“