Bandaríkjadalurinn hefur ekki veikst meira á fyrri árshelmingi frá árinu 1973. Í umfjöllun Financial Times segir að veiking dalsins sé merki um að alþjóðlegir fjárfestar séu í auknum mæli að endurmeta afstöðu sína til vægis dollaraeigna í eignasöfnum sínum í ljósi viðskipta- og efnahagsstefnu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Dollar-vísitalan (ICE U.S. Dollar Index), sem mælir gengi dalsins gagnvart körfu sex gjaldmiðla, hefur lækkað um 10,9% á fyrstu sex mánuðum ársins.
Vísitalan hefur ekki lækkað meira yfir sex mánaða tímabil frá árinu 2009. Sé aðeins horft til fyrri árshelmings, þá lækkaði vísitalan síðast meira á fyrstu sex mánuðum ársins 1973.
Evran hefur hækkað um 13% gagnvart Bandaríkjadal í ár og stendur nú í 1,17 dölum. FT bendir á að nokkrir bankar á Wall Street höfðu spáð því gengi evrunnar gagnvart dalnum myndi falla í ár og verða í kringum 1,0. Þessi þróun er m.a. rakin til þess að eftirspurn eftir öruggum eignum á öðrum mörkuðum, líkt og í Þýskalandi, hafi aukist í ár.
Þá hefur efnahagsfrumvarp Donalds Trumps ýtt undir áhyggjur af sjálfbærni ríkisfjármála í Bandaríkjunum. Áætlað er að frumvarpið leiði til það skuldir ríkissjóðs Bandaríkjanna aukist um 3,2 þúsund milljarða dala á næsta áratug, að því er segir í umfjöllun FT: